Sendu pappírana á vitlaust Kongó Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. nóvember 2016 23:00 Benik Afobe í leik með Kongó. Vísir/Getty
Benik Afobe, sóknarmaður Bournemouth, missti af tækifæri til að spila með landsliði sínu á dögunum vegna vandræðalegra mistaka enska knattspyrnusambandsins. Afobe hafði spilað með yngri landsliðum Englands en hann fæddist í Englandi. Foreldrar eru hins vegar frá Kongó og valdi hann að spila með landsliði Kongó fyrr á þessu ári. Það eru tvö ríki í Afríku sem heita Kongó. Fullt heiti heimalands Afobe er Lýðstjórnarlýðveldið Kongó (e. DR Congo) en enska knattspyrnusambandið sendi hins vegar öll gögn til Lýðveldisins Kongó (e. The Congo). „Málið er einfaldlega að enska sambandið sendi gögnin á vitlaust Kongó,“ sagði Afobe í samtali við BBC. „Það tók tíu daga að færa gögnin á réttan stað og þegar FIFA (Alþjóðaknttspyrnusambandið) var búið að vinna úr þeim öllum var leikurinn búinn að fara fram,“ sagði Afobe en Kongó mætti á dögunum Gíneu og vann, 2-1. „Það var þó þess virði að fara á staðinn og kynnast liðinu og staðarháttum. Sérstaklega þar sem að við unnum leikinn,“ sagði hann enn fremur. „Það voru mér vonbrigði að fá ekki að spila en aðalmálið var að komast aftur heill heilsu til Bournemouth.“ Afobe vonast til að komast í landslið Kongó sem spilar í Afríkukeppninni í janúar næstkomandi.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 23-24 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira