Luiz fullkominn í nýju kerfi Chelsea því hann þarf ekki að dekka neinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. desember 2016 13:00 David Luiz þarf minna að glíma við ása eins og Sergio Agüero í 3-4-3 kerfinu. vísir/getty
David Luiz, miðvörður Chelsea, er að blómstra í nýju leikkerfi liðsins undir stjórn Antonio Conte en það virðist henta honum alveg fullkomlega. Þetta segir Ruud Gullit, fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea, í ítarlegri greiningu á Luiz á vef BBC. Luiz spilaði með Chelsea frá 2011-2014 og gerði 1,4 mistök í leik sem leiddu til færis mótherjans. Margir efuðust um ákvörðun Conte að kaupa Brassann á lokadegi félagaskipta í ágúst en nú er hann bara að gera 0,6 mistök í leik og Chelsea er búið að vinna átta leiki í röð. „Ég skil að það voru efasemdir því Conte er þekktur fyrir góðan varnarleik á sama tíma og Luiz er þekktur fyrir að slökkva á sér í varnarleiknum og vera svolítið kærulaus,“ segir Gullit. „Luiz er núna 29 ára gamall og er enn leikmaður sem getur gert mistök en 3-4-3 leikkerfið sem Chelsea spilar gerir Conte kleift að nýta frekar styrkleika Luiz vegna leikmannanna sem hann er með í kringum sig.“ „Fyrir framan vörnina eru N'Golo Kante og Nemanja Matic að verja varnarlínuna en lykilatriðið fyrir Luiz í þessari þriggja manna miðvarðalínu er að hann þarf ekki að dekka neinn. Gary Cahill og Cesar Azpilicueta gera það og vinna skítavinnuna fyrir Luiz.“ „Luiz lendir í vandamálum þegar hann spilar í fjögurra manna varnarlínu en í 3-4-3 er hann meiri sópari og þarf ekki að fara í jafnmörg návígi og aðrir varnarmen Chelsea. Þetta hentar honum vel og svo fær hann meira frjálsræði en áður,“ segir Ruud Gullit.
Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Fleiri fréttir Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Sjá meira