Kemur nýr markvörður Liverpool úr óvæntri átt? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2016 14:30 Alex Manninger kvaddi stuðningsmenn Augsburg í vor. Vísir/Getty
Alex Manninger, fyrrum markvörður Arsenal, gæti orðið nýr markvörður hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool Echo segir frá því að austurríski markvörðurinn æfi nú með Liverpool-liðinu í von um að fá samning. Manninger er ekkert með neitt í höndunum enn en reynir að sanna sig fyrir Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Liverpool er þegar búið að kaupa einn markvörð í sumar en enska félagið borgaði Mainz 05 4,7 milljónir punda fyrir Loris Karius. Karius hefur þegar fengið markmannstreyju númer eitt en mun berjast við Simon Mignolet um markmannsstöðuna. Það er því kannski ekki líklegt að Liverpool semji við Manninger. Manninger er orðinn 39 ára gamall og hefur verið hjá þýska liðinu FC Augsburg undanfarin fjögur tímabil en þar áður var hann hjá ítölsku liðunum Siena, Udinese og Juventus. Alex Manninger lék með Arsenal á árunum 1997 til 2002 og varð enskur meistari með liðinu. Manninger var þó ekki aðalmarkvörður Arsenal því á þessum árum stóð David Seaman á milli stanganna á Highbury. Alex Manninger lék alls 39 leiki með Arsenal á sínum tíma og fékk á sig 37 mörk. Hann hélt 18 sinnum markinu hreinu þar á meðal sex sinnum í sjö leikjum á meistaratímabilinu 1997-98. Alex Manninger komst ekki í austurríska landsliðshópinn á EM í Frakklandi en hann spilaði sinn 33. og síðasta landsleik árið 2009.
Enski boltinn Mest lesið Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Dagskráin í dag: Pílukast og Íslandsmeistarar Sport Fleiri fréttir „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Sjá meira