Zlatan biðst afsökunar: Leikur sem ég vildi virkilega spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2016 18:00 Zlatan Ibrahimovic togar Leroy Fer upp eftir brotið. Vísir/Getty
Zlatan Ibrahimovic gerði sig sekan um afdrifaríkt brot undir lokin á leik Manchester United og Swansea City um helgina. Brotið kallaði á gult spjald og þar með leikbann í næsta leik. Ibrahimovic missir af sannkölluðum stórleik en hann má ekki spila í fyrsta leik eftir landsleikjahléið þegar Manchester United tekur á móti Arsenal á Old Trafford laugardaginn 19. nóvember næstkomandi. Zlatan Ibrahimovic baðast afsökunar á gula spjaldinu. „Ég vildi óska þess að ég væri með í þessum leik því þetta er leikur sem ég vildi virkilega spila,“ sagði Ibrahimovic í samtali við sjónvarpsstöð Manchester United, MUTV. Zlatan fékk gula spjaldið fyrir brot á Leroy Fer, miðjumanni Swansea. Brotið kom á 76. mínútu í stöðunni 3-1 fyrir Manchester United. Zlatan var búinn að gera það gott og hafði skorað tvö marka síns liðs. „Alltaf þegar ég reyni að vera sterkur og fer í tæklingu þá fær ég gult spjald. Ég veit ekki ástæðuna fyrir þessu gula spjaldi vegna þess að ég var orðinn svo þreyttur að ég heyrði ekki útskýringu dómarans,“ sagði Ibrahimovic. „Svona er þetta bara. Enski boltinn er harður og þegar láta menn finna fyrir sér. Ég sætti mig bara við það og reyni að taka á þessu af fagmennsku. Ég biðst afsökunar á því að missa af Arsenal-leiknum. Ég treysti samt liðsfélögunum mínum því ég veit að þeir standa sig vel án mín,“ sagði Zlatan Ibrahimovic. Zlatan Ibrahimovic var þarna að skora sín fyrstu mörk í ensku úrvalsdeildinni síðan 10. september en hann er kominn með 6 mörk í 11 leikjum í deildinni á sínu fyrsta tímabili með Manchester United. Zlatan fær nú fínt frí frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni eða þar til United fær West Ham í heimsókn á Old Trafford 27.nóvember.Zlatan fær gula spjaldið frá Neil Swarbrick.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Reiður Geno sendi áhorfanda fingurinn Sport De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Enski boltinn Shedeur stóð sig vel og fékk hrós frá LeBron Sport Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti