Gylfi á skotskónum í jafntefli gegn Chelsea 11. september 2016 17:00 Diego Costa fagnar marki sínu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði metin fyrir Swansea í stórskemmtilegu 2-2 jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir að hafa krækt sjálfur í vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. Diego Costa sem hefur reynst Swansea erfiður í gegn um tíðina kom Chelsea yfir á 18. mínútu er hann lagði boltann í netið af vítateigslínunni eftir sendingu frá Oscar. Leiddu gestirnir í hálfleik en Gylfi var fljótur að jafna metin í seinni hálfleik. Krækti hann í vítaspyrnu þegar Thibaut Courtois fellti hann innan vítateigsins og steig hann sjálfur á punktinn til að jafna. Með því varð Gylfi markahæsti leikmaður Swansea í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en hann tók með markinu fram úr Wilfried Bony. Stuttu síðar kom Leroy Fer Swansea yfir þegar hann vann boltann af Gary Cahill og kom boltanum framhjá Courtois en sennilega hefði verið rétt að dæma brot á Fer í aðdraganda marksins. Costa náði að jafna á ný fyrir Chelsea með frábærri bakfallsspyrnu á 81. mínútu og voru lokamínúturnar því æsispennandi. Chelsea fékk nokkur færi til að stela sigrinum á lokamínútunum en náðu ekki að bæta við þriðja markinu og skyldu liðin því jöfn. Var þetta fyrsta jafntefli Chelsea á tímabilinu sem eftir þrjá sigra í röð í fyrstu leikjunum en Swansea er í 13. sæti með 4 stig að fjórum umferðum loknum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni Gylfi Þór Sigurðsson varð í dag markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni með marki sínu gegn Chelsea á heimavelli en Gylfi skoraði af vítapunktinum eftir að hafa krækt í vítaspyrnuna sjálfur. 11. september 2016 16:25 Mest lesið Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik Íslenski boltinn „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Mjög ósáttur við rasisma meðal þýsku þjóðarinnar Fótbolti Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Í beinni: Víkingur R. - Fylkir | Barist á toppi og botni Íslenski boltinn Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Landsliðskonan náði á kjörstað fyrir lokun Sport Charles Barkley og fleiri hneyksluð yfir ljótum brotum á Caitlin Clark Körfubolti Fleiri fréttir Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Sjá meira
Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni Gylfi Þór Sigurðsson varð í dag markahæsti leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni með marki sínu gegn Chelsea á heimavelli en Gylfi skoraði af vítapunktinum eftir að hafa krækt í vítaspyrnuna sjálfur. 11. september 2016 16:25