Pardew segir að pressan sé á Gylfa og félögum í Swansea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2016 14:30 Gylfi Þór Sigurðsson vann sér inn vítaspyrnu um síðustu helgi og skoraði úr henni sjálfur. Vísir/Getty
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Crystal Palace, mætir með sína menn á Liberty Stadium í Swansea á laugardaginn þar sem tvö lið í basli berjast um gríðarlega mikilvæg stig. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City eru neðstir í ensku úrvalsdeildinni og hafa enn ekki unnið leik síðan Bandaríkjamaðurinn Bob Bradley settist í stjórastólinn hjá félaginu. Bob Bradley hefur stýrt Swansea í fimm leikjum og hefur velska liðið hefur aðeins náð í tvö stig í þeim. Swansea gerði markalaust jafntefli við Watford og svo skoraði Gylfi mark liðsins í 1-1 jafntefli við Everton um síðustu helgi. Þrátt fyrir þessi tvö stig af fimmtán mögulegum hafa Gylfi og félagar í Swansea City náð í fleiri stig á þessum tíma en Crystal Palace. Palace-menn hafa nefnilega tapað fimm leikjum í röð. „Það er erfitt að meta stöðu Swansea eins og er. Þeir eru sem dæmi tíu breytingar í síðustu viku og náðu frábærum úrslitum á útivelli á móti Everton," sagði Alan Pardew á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Við erum ekkert vissir um það hvernig liði þeir munu stilla upp. Þeir eru á heimavelli og miðað við okkar slaka form þá ætti pressan að vera á þeim í þessum leik,“ sagði Pardew. Crystal Palace er eins og er í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar fimm stigum og fjórum sætum á undan Swansea. „Þetta hefur verið mjög erfið byrjun hjá þeim en þeir eru með nokkra frábæra leikmenn. Þeir eru með leikmenn sem geta komið þeim úr þeirri stöðu sem þeir eru í núna," sagði Alan Pardew. Alan Pardew fór síðan að tala um knattspyrnustjóra Manchester City þegar hann var spurður út í þá ákvörðun Swansea að ráða Bandaríkjamanninn Bob Bradley. „Sjáið til. Pep Guardiola var með enga reynslu af ensku úrvalsdeildinni þegar hann tók við City og það talaði enginn um það. Hann (Bradley) var búinn að vinna sér inn fyrir þessu tækifæri," sagði Pardew.
Enski boltinn Mest lesið Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Golf Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Sport Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Íslenski boltinn Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Sport Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Fótbolti „Auðvitað skoraði Orri, hann skorar alls staðar“ Fótbolti Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski boltinn Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Enski boltinn Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Fleiri fréttir Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Sjá meira