Klinsmann ánægður með að Bradley sé orðinn stjóri Gylfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2016 15:30 Jürgen Klinsmann og Joachim Löw. Vísir/EPA
Jürgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, segir það vera frábærar fréttir að Bob Bradley hafi fyrstur Bandaríkjamanna fengið tækifæri til að stýra liði í ensku úrvalsdeildinni. Bob Bradley tekur við Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea City af Ítalanum Francesco Guidolin sem var rekinn á mánudaginn. Gylfi verður því kominn með nýjan knattspyrnustjóra þegar hann snýr til baka eftir landsleikina á mót Finnlandi og Tyrklandi. Swansea City vann fyrsta leik tímabilsins en hefur ekki unnið leik síðan. Liðið er komið niður í sautjánda sæti deildarinnar. „Bob á skilið að fá þetta tækifæri. Það er frábært að sjá það að það séu til eigendur í ensku úrvalsdeildinni sem eru tilbúnir að veðja á amerískan þjálfara,“ sagði Jürgen Klinsmann í samtali við BBC. „Það er til fullt af afar góðum amerískum þjálfurum sem geta þjálfað utan Bandaríkjanna,“ bætti Klinsmann við. Bob Bradley þjálfaði bandaríska landsliðið frá 2006 til 2011 en hefur síðan þjálfað í Egyptalandi, Noregi og nú síðast í Frakklandi. Bradley var ráðinn í stjórastarfið hjá Swansea frekar en menn eins og Ryan Giggs, Paul Clement og Marcelino sem voru allir orðaðir við stöðuna. „Bob fór erfiðu leiðina. Það hefur verið tilkomumikið að sjá það hvar hann hefur reynt fyrir sér í þjálfuninni. Hann var þar óhræddur að takast á við ólíka menningaheima, ólík tungumál og óvenjulega aðstæður. Hann á skilið að fá þetta tækifæri og ég vona að hann fá allan mögulegan stuðning, “ sagði Klinsmann.
Enski boltinn Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Sjá meira