Upphitun fyrir leiki dagsins: Manchester United stefnir á fimm í röð | Myndband Kristinn Páll Teitsson skrifar 26. desember 2016 08:00
Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og hefst veislan með frumraun Crystal Palace undir stjórn Sam Allardyce gegn Watford. Klukkan 15:00 hefjast svo sex leikir en lokaleikur dagsins er á milli Hull og Manchester City. Lærisveinar David Moyes í Sunderland eiga erfitt verkefni fyrir höndunum þegar þeir mæta Manchester United á Old Trafford í dag. Manchester United hefur unnið fjóra leiki í röð í öllum keppnum fyrir leik dagsins og eru strákarnir hans Jose Mourinho farnir að klífa upp töfluna. Sunderland hefur unnið fjóra leiki af síðustu sjö en það verður erfitt að ná stigum gegn liði Manchester United sem hefur spilað betur undanfarnar vikur. Arsenal tekur á móti West Brom á heimavelli en Skytturnar þurfa nauðsynlega á sigri að halda eftir tvo tapleiki í röð. Íslendingarnir í ensku úrvalsdeildinni, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson, verða báðir í eldlínunni í dag. Jóhann sem hefur verið meiddur undanfarnar vikur gæti snúið aftur í lið Burnley í mikilvægum leik gegn Middlesbrough á heimavelli. Gylfi og félagar í Swansea mega varla við að tapa fleiri stigum í fallbaráttunni þegar þeir taka á móti West Ham sem hefur unnið tvo leiki í röð. Chelsea stefnir á tólfta sigurinn í röð þegar þeir taka á móti Bournemouth á heimavelli en Diego Costa og NGolo Kante taka báðir út leikbann hjá Chelsea í dag. Þá taka Englandsmeistararnir í Leicester á móti Everton en þar mætast tvö af kaldari liðum deildarinnar. Leicester hefur aðeins fengið sex stig úr síðustu átta leikjum en Everton hefur aðeins fengið tíu stig úr síðustu tólf leikjum.Leikir dagsins: 12.30 Watford - Crystal Palace 15:00 Arsenal - West Brom 15:00 Burnley - Middlesbrough 15:00 Chelsea - Bournemouth 15:00 Leicester - Everton 15:00 Manchester United - Sunderland 15:00 Swansea - West Ham 17:30 Hull City - Manchester City
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Fleiri fréttir Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Sjá meira