Jürgen Klopp mikill aðdáandi Rocky-myndanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2016 14:30 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, Sylvester Stallone og Rocky. Mynd/Samsett mynd
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sló að venju á létta strengi á blaðamannafundi en það er nánast hægt að ganga að því vísu að Þjóðverjinn bjóði upp á eitthvað skemmtilegt á þessum fundum. Liverpool mætir Everton á mánudagskvöldið í lokaleik sínum fyrir jól en leikurinn fer fram á Goodison Park. Klopp komst á því í gær að Goodison Park kemur við sögu í einni Rocky-myndanna. „Það var algjör tilviljun en ég fór í jólapartý í gær og þegar ég kom heim hafði ég ekkert að gera. Ég ákvað að horfa á myndina Creed sem var mjög góð,“ sagði Jürgen Klopp og bætti við: „Ég hafði ekki hugmynd um að Goodison Park kæmi við sögu í myndinni. Hann leit vel út en ekkert meira en það,“ sagði Klopp brosandi. Bardaginn í Creed fór einmitt fram á Goodison Park en Sylvester Stallone er mikill Everton-maður. „Þegar ég var yngri reyndi ég einu sinni að nota söguna úr Rocky IV, þegar Rocky mætir Ivan Drago, á fundi með leikmönnum mínum. Eftir aðeins fimm mínútur fór ég að átta mig á því að leikmennirnir höfðu ekki hugmynd um það sem ég var að tala um,“ sagði Klopp. „Ég varð að hætta með söguna því aðeins tveir af leikmönnunum höfðu séð myndina,“ sagði Klopp. „Rocky er æðisleg saga. Ég hef elskað hann alla mína ævi. Kannski mun ég einhvern daginn hlaupa upp tröppurnar í Philadelphia en það verður ekki í þessari viku,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira