Stóri Sam: Forgangsatriði að bæta varnarleikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2016 16:00 Lið undir stjórn Stóra Sams hafa aldrei fallið. vísir/getty
Sam Allardyce segir það sé forgangsatriði hjá honum að stoppa í götin í varnarleik Crystal Palace sem hefur verið slakur á tímabilinu.Allardyce var ráðinn knattspyrnustjóri Palace í gær, aðeins degi eftir að félagið rak Alan Pardew. Palace er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 15 stig, aðeins stigi frá fallsæti. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu 11 deildarleikjum sínum. „Ég stend frammi fyrir erfiðu verkefni að koma í veg fyrir að fáum á okkur mörk,“ sagði Allardyce á sínum fyrsta blaðamannafundi sem stjóri Palace. Allardyce hrósaði sóknarleik Palace en aðeins efstu fimm lið í ensku úrvalsdeildinni hafa skorað meira í vetur. Palace hefur hins vegar fengið á sig 32 mörk, eða næstum því tvö mörk að meðaltali í leik. „Við verðum að hætta að fá á okkur mörk og tryggja að mörkin sem við skorum dugi til sigurs. Þetta hljómar einfalt en er það ekki og við þurfum að breyta þessu,“ sagði Allardyce sem tók við Sunderland í svipaðri stöðu á síðasta tímabili og tókst að bjarga liðinu frá falli. Allardyce vill styrkja leikmannahóp Palace í janúarglugganum. Hann segir þó að það skipti höfuðmáli að halda lykilmönnum liðsins. „Við þurfum að passa leikmennina sem við erum með og að sögusagnir um áhuga liða á þeim hafi ekki áhrif á þá. Þú hefur áhyggjur af þessu sem stjóri því svona sögusagnir geta haft truflandi áhrif á leikmenn,“ sagði Allardyce sem stýrir Palace í fyrsta sinn á öðrum degi jóla þegar liðið sækir Watford heim.
Enski boltinn Tengdar fréttir Stuðningsmenn Crystal Palace fá Stóra Sam í jólagjöf Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace staðfesti nú rétt í þessu ráðninguna á Sam Allardyce sem næsta knattspyrnustjóra félagsins. 23. desember 2016 19:49 Pardew þriðja fórnarlamb Benteke-bölvunarinnar Christian Benteke hefur fyrir löngu sannað sig í ensku úrvalsdeildinni en þessi 26 ára gamli belgíski framherji hefur skorað 59 mörk í 133 úrvalsdeildarleikjum fyrir Crystal Palace, Liverpool og Aston Villa. 23. desember 2016 23:15 Pardew fékk stígvélið í jólagjöf frá Palace Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace er búið að reka knattspyrnustjórann Alan Pardew. 22. desember 2016 15:15 Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Sjá meira
Stuðningsmenn Crystal Palace fá Stóra Sam í jólagjöf Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace staðfesti nú rétt í þessu ráðninguna á Sam Allardyce sem næsta knattspyrnustjóra félagsins. 23. desember 2016 19:49
Pardew þriðja fórnarlamb Benteke-bölvunarinnar Christian Benteke hefur fyrir löngu sannað sig í ensku úrvalsdeildinni en þessi 26 ára gamli belgíski framherji hefur skorað 59 mörk í 133 úrvalsdeildarleikjum fyrir Crystal Palace, Liverpool og Aston Villa. 23. desember 2016 23:15
Pardew fékk stígvélið í jólagjöf frá Palace Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace er búið að reka knattspyrnustjórann Alan Pardew. 22. desember 2016 15:15