John Terry: Ég vil fá nýjan samning hjá Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2016 08:15 John Terry með ungum leikmanni Chelsea. Vísir/Getty
John Terry tekur út leikbann í síðustu tveimur leikjum Chelsea á tímabilinu en það þarf þó ekki að fara svo að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. Samingur John Terry rennur út í sumar og verðandi knattspyrnustjóri Chelsea, Ítalinn Antonio Conte, ræður því væntanlega hvort að Terry fái nýjan samning sem fyrirliðinn sækist nú eftir. John Terry er orðinn 35 ára gamall en hann hefur verið hjá Chelsea í tvo áratugi og spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik með liðinu 28. október 1998. „Ég ætlaði mér að spila í nokkur ár í viðbót og vonandi verður það hjá Chelsea. Ég vil fá nýjan samning hjá Chelsea," sagði John Terry í viðtali við Youtube-síðu danska félagsins Bröndby en Terry er góður vinur Jan Bech Andersen, sem er eigandi Bröndby. „Ég er leikmaður Chelsea og Chelsea hefur verið mitt félag síðan að ég var fjórtán ára. Ég elska Chelsea," sagði John Terry en Sky Sports skrifar þetta upp eftir Bröndby-viðtalinu. John Terry hefur spilað 703 leiki fyrir Chelsea og hann hefur verið fyrirliði í yfir 500 leikjum. John Terry á eftir að spila einn leik á Stamford Bridge áður en samningur hans rennur út. Hann fékk völlinn á leigu á mánudaginn kemur eða eftir að tímabilið er búið. Hann ætlar þar að skemmta sér með vinum sínum. Það kostar vanalega 22 þúsund pund, um 3,9 milljónir íslenskar, að leiga Stamford Bridge en fyrirliði Chelsea fékk hann frítt sem þarf nú ekki að koma mörgum á óvart.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leik lokið: KR - ÍA 5-1| Hefndu ófaranna á Skaganum Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira