Owen lét Mourinho ekki slá sig útaf laginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2016 15:30 Michael Owen og Zlatan Ibrahimovic. Vísir/Getty
Michael Owen stendur við gagnrýni sína á sænska framherjann Zlatan Ibrahimovic og var óhræddur að svara Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Manchester United. Michael Owen gagnrýndi Zlatan Ibrahimovic í útsendingu BT Sport fyrir nokkru. „Hann er án vafa bara tímabundin lausn í framherjastöðuna. Hann er góður en við erum að tala um Manchester United. Þú verður að vera einn besti framherji heims til að vera í byrjunarliði Manchester United,“ sagði Michael Owen Hinn 33 ára gamli Zlatan Ibrahimovic hefur skorað 8 mörk í 14 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og alls 13 mörk í 23 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili. Jose Mourinho taldi ástæðu til að gera lítið úr afrekum Michael Owen hjá Manchester United eftir að hann heyrði gagnrýni Owen á sinn mann. „Staðreyndin er sú að Zlatan Ibrahimovic, þrátt fyrir að Michael Owen sé ekki hrifinn af honum, mun skora fleiri mörk á einu tímabili en Michael Owen gerði á sínum þremur tímabilum með félaginu. Ibrahimovic er næstum því búinn að ná því á þremur mánuðum þannig að hann er ekki slæmur kostur fyrir okkur,“ sagði Jose Mourinho. Svar Michael Owen var að benda á launaumslag Svíans en Zlatan Ibrahimovic fær 32 milljónir í vikulaun hjá Manchester United. „Ég lít svo á að mín mörk hafi verið meira virði fyrir Manchester United því ég þénaði aðeins um tíu prósent af því sem Zlatan fær í hverri viku,“ sagði Owen. Michael Owen spilaði með Manchester United frá 2009 til 2012 og varð enskur meistari 2011.
Enski boltinn Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira