Marcos Rojo fær að heyra það í ensku blöðunum í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2016 09:00
Ruddatækling Marcos Rojo í leik Manchester United og Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi er uppslátturinn á forsíðum nokkra blaða. Marcos Rojo fékk bara gult spjald fyrir tveggja fóta tæklingu á Wilfried Zaha í fyrri hálfleik. Fyrir aðeins níu dögum slapp Marcos Rojo einnig eftir samskonar tæklingu á Everton-manninn Idrissa Gueye. Gula spjaldið þýðir að Marcos Rojo er frjáls eins og fuglinn með þessa tæklingu enda er litið svo á að búið sé að taka afstöðu til hennar eftir þetta gula spjald dómarans Craig Pawson. Manchester United tryggði sér 2-1 sigur með marki Zlatan Ibrahimovic tveimur mínútum fyrir leikslok. Það hefði verið erfitt fyrir United að landa öllum þremur stigunum manni færri í 50 mínútur. Bæði Daily Mirror og The Daily Star eru með tæklingu Argentínumannsins á forsíðum sínum og á þeim myndum, sem sjá má hér fyrir neðan, er enginn vafi á því að hann er með báða sólana á lofti. Jose Mourinho kom Marcos Rojo til varnar eftir leikinn og hrósaði honum bæði fyrir góða frammistöðu sem og að spila heiðarlegan og hreinan fótbolta. Portúgalski stjórinn treysti sér hinsvegar ekki til að tjá sig um tæklinguna sjálfa sem er kannski skiljanlegt.Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Fótbolti EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport Fleiri fréttir Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Sjá meira