Conte nær ekki að taka Bonucci frá Juventus Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2016 13:45 Leonardo Bonucci. Vísir/Getty
Leonardo Bonucci verður áfram í herbúðum ítölsku meistarana í Juventus en kappinn hefur nú gengið frá nýjum samningi. Bonucci hefur verið orðaður við Chelsea að undanförnu en Antonio Conte gerði á sínum tíma Bonucci að miðpunkti í vörn sinni hjá bæði Juventus og ítalska landsliðinu. Eftir að Conte kom á Stamford Bridge voru enskir fjölmiðlar duglegir að velta uppi þeim möguleika að Bonucci myndi elta Conte til Lundúna. Hinn 29 ára gamli varnarmaður hefur nú framlengt samning sinn við Juventus til ársins 2021 og það lítur hreinlega út fyrir það að Bonucci fari langt með enda feril sinn hjá Juve enda orðinn 34 ára gamall þegar samningurinn rennur út. Leonardo Bonucci kom til Juventus frá Bari árið 2010 og í framhaldinu vann hann sér sæti í ítalska landsliðinu og varð að einum besta varnarmanni heims. Það er skiljanlegt að Juventus hafi lagt ofurkapp á því að semja við Leonardo Bonucci sem er einn þriðji af hinni frægu vörn Juve við hlið þeirra Giorgio Chiellini og Andrea Barzagli. Auk þess að vera frábær varnarmaður er Bonucci góður með boltann og þekktur fyrir frábærar sendingar fram völlinn. Antonio Conte bjó til þessa þriggja manna vörn á sínum tíma, fyrst hjá Juventus og fór síðan með hana inn í ítalska landsliðið. Conte hefur síðan gert slíkt hið sama með Chelsea-vörnina með frábærum árangri en Chelsea er með sjö stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Arnar og Bjarki unnu golfmót Golf Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Fleiri fréttir Í beinni: Fulham - Manchester United | Hvað gera djöflarnir í Lundúnum? Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Áfram í marki Man. Utd eftir mistökin Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Sjá meira