Fjögur mörk frá Martial í viðbót kosta United 1,2 milljarða Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. desember 2016 11:30 Anthony Martial fagnar marki í gær. vísir/getty
Anthony Martial, framherji Manchester United, þakkaði traustið í gærkvöldi þegar hann skoraði tvívegis í 4-1 sigri Manchester United gegn West Ham í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Martial hefur ekki átt fast sæti í liði Manchester United á leiktíðinni en spilaði vel í gær þegar United-liðið valtaði yfir West Ham og skaut sér í undanúrslitin. Kaup Manchester United á Martial vöktu nokkra athygli á sínum tíma enda höfðu ekki margir heyrt um unglinginn þegar enska félagið reiddi frá ríflega 30 milljónir punda fyrir hann. Það var bara upphafsgreiðsla því endanleg upphæð gæti numið rétt tæplega 60 milljónum punda með árangurstengdum greiðslum. Það styttist í eina slíka eftir mörkin tvö í gær. Martial er nú búinn að skora 21 mark fyrir Manchester United en þegar hann skorar 25. markið þarf United að borga franska liðinu Monaco, þaðan sem hann var keyptur, 10 milljónir evra eða 1,2 milljarð íslenskra króna. United þarf einnig að borga Monaco sömu upphæð þegar Martial spilar 25. landsleikinn fyrir Frakkland og aðrar 10 milljónir evra ef hann verður tilnefndur sem besti leikmaður heims.Fyrra mark Martial gegn West Ham: Seinna mark Martial gegn West Ham: For those asking, here are the full add-ons possible to Monaco re Martial's move to MUFC, over and above the €50m transfer fee already paid. pic.twitter.com/un83ILsDbA— sportingintelligence (@sportingintel) November 30, 2016
Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Sjá meira