Fjögur mörk og tvö rauð í áttunda sigri Chelsea í röð | Sjáðu mörkin 3. desember 2016 14:30
Eftir að hafa lent undir og verið undir allan fyrri hálfleikinn náði Chelsea að snúa leiknum sér í hag og vinna 3-1 sigur á Manchester City á Etihad-vellinum í hádegisleik enska boltans í dag. Gary Cahill varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net undir lok fyrri hálfleiks eftir stanslausa sókn heimamanna og leiddi Manchester City 1-0 í hálfleik. Kevin De Bruyne fékk færi til að bæta við marki í upphafi seinni hálfleiks en skot hans af meters færi fyrir opnu marki fór í slánna. Það átti eftir að kosta heimamenn því stuttu síðar jafnaði Chelsea metin. Var þar að verki Diego Costa eftir góða sendingu Cesc Fabregas en stuttu síðar lagði hann upp mark fyrir Willian. Átti hann þá frábæra sendingu inn fyrir vörn Manchester City og Willian afgreiddi boltann í fjærhornið. Eden Hazard gerði endanlega út um leikinn undir lok venjulegs leiktíma er hann fékk sendingu inn fyrir vörnina frá Marcus Alonso og afgreiddi boltann framhjá Claudio Bravo. Það sauð allt upp úr á lokamínútunum og fengu Sergio Aguero og Fernandinho báðir rautt spjald á einni mínútu. Aguero fyrir ljóta tæklingu og Fernandinho fyrir að ýta Fabregas upp í stúku þegar kýtingur átti sér stað eftir tæklinguna. Sigurinn þýðir að Chelsea er komið með fjögurra stiga forskot á Liverpool og Manchester City á toppi deildarinnar en Liverpool á leik til góða gegn Bournemouth á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti Ísland - England | Glódís slær met í risaleik Fótbolti Vignir í dauðafæri og nýtir sér leynivopn á Íslandi Sport Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Íslenski boltinn Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Íslenski boltinn Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Íslenski boltinn Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Tottenham - Brighton | De Zerbi mætir gömlum félögum Enski boltinn Fleiri fréttir Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Tottenham - Brighton | De Zerbi mætir gömlum félögum Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Sjá meira