Upphitun fyrir leiki dagsins: Tekst Liverpool að saxa á forskot Chelsea? Kristinn Páll Teitsson skrifar 4. desember 2016 08:00
Tveir leikir fara fram í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en í hádegisleiknum tekur Bournemouth á móti Liverpool áður en Manchester United ferðast yfir til Bítlaborgar og mætir Everton. Lærisveinar Jurgen Klopp eru á miklu flugi þessa stundina en Liverpool hefur leikið ellefu leiki í röð án taps en á þessum tíma hefur liðið nælt í 27 stig af 33 mögulegum. Liverpool lenti í vandræðum án Philippe Coutinho gegn Sunderland í síðustu umferð en brasilíski galdramaðurinn fór meiddur af velli og verður ekki með liðinu í jólavertíðinni. Bournemouth siglir lygnan sjó um miðja deild eftir þrettán umferðir en liðinu mistókst í síðustu umferð að vinna annan leikinn í röð. Lærisveinar Eddie Howe hafa aðeins fengið fjögur stig í síðustu fimm leikjum en Bournemouth hefur aldrei tekist að vinna Liverpool í keppnisleik. Í seinni leik dagsins mætast Everton og Manchester United í 49. skiptið í ensku úrvalsdeildinni en gestirnir frá Manchester hafa unnið 33 af 48 leikjum hingað til. Everton hefur aðeins nælt í sex stig í síðustu sex leikjum eftir góða byrjun á ensku úrvalsdeildinni en Everton hefur aðeins skorað einu sinni í síðustu þremur leikjum. Manchester United er einnig að ganga í gegnum erfiða tíma í deildinni en þetta er versta byrjun Manchester United í ensku úrvalsdeildinni síðustu 26 ár. Manchester United hefur aðeins nælt í átta stig í síðustu sjö leikjum. Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, verður ekki með liðinu í leiknum í dag vegna leikbanns eftir að hafa nælt í gult spjald í deildarbikarnum í vikunni.
Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Fleiri fréttir Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Sjá meira