Þjálfarinn minn misnotaði mig Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. nóvember 2016 11:30 Stewart átti sín bestu ár á ferlinum í búningi Spurs þar sem hann lék meðal annars með Gary Lineker og Paul Gascoigne. vísir/getty
Paul Stewart, fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, steig fram í dag og upplýsti að hann hefði verið misnotaður kynferðislega af þjálfaranum sínum er hann var unglingur. Hinn 52 ára gamli Stewart greinir frá misnotkuninni í viðtali við Mirror en hann segir þjálfarann hafa misnotað sig í fjögur ár. Frá því hann var 11 ára til 15 ára. Stewart segist opna sig með þetta mál núna í von um að það hjálpi fleiri fórnarlömbum að stíga fram. Þessi fyrrum framherji segir þjálfarann hafa misnotað sig daglega í fjögur ár. Hann hafi síðan hótað að drepa ættingja Stewart ef hann myndi kjafta frá.Stewart í leik með Liverpool.vísir/gettyMisnotkunin hófst í kjölfar þess að þjálfarinn varð vinur foreldra hans og sagðist ætla að hjálpa til við að gera Stewart að stjörnu. „Einn daginn erum við í bílnum og hann byrjar að snerta mig. Ég varð skíthræddur og vissi ekki hvað ég átti að gera. Ég reyndi að segja foreldrum mínum að bjóða honum ekki heim en ég var bara 11 ára og það var ekket hlustað á mig,“ sagði Stewart. „Síðan byrjaði misnotkunin fljótlega. Hann sagðist ætla að drepa mömmu, pabba og bræður mína ef ég kjaftaði frá. Þegar maður er 11 ára þá trúir maður slíkum hótunum.“ Stewart segir að fleiri strákar í liðinu hafi einnig verið misnotaðir. Stewart hóf atvinnumannaferil sinn með Blackpool árið 1981 og lék með þeim til ársins 1987. Þá lék hann eina leiktíð með Man. City áður en hann færði sig yfir til Tottenham. Þar lék Stewart 131 leik á fjórum árum og skoraði í þeim leikjum 28 mörk. Frá 1992 til 1996 var hann hjá Liverpool en náði aðeins að spila 32 leiki fyrir félagið og skora eitt mark.Full of admiration for former Spurs and England star Paul Stewart. What a brave courageous man. What an awful story. https://t.co/i9rRqfgt8G pic.twitter.com/W2AFiXuKzM— David Lammy (@DavidLammy) November 22, 2016
Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Fleiri fréttir Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Sjá meira