Pochettino: Sissoko átti ekki skilið að vera í hópnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. nóvember 2016 19:45 vísir/getty
Moussa Sissoko, annar af tveimur dýrustu leikmönnum í sögu Tottenham Hotspur, er ekki nógu góður til að komast á bekkinn hjá Spurs um þessar mundir. Sissoko var ekki í leikmannahópi Tottenham þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Chelsea á laugardaginn. „Fótbolti snýst ekki um peninga. Þú verður að sýna á æfingasvæðinu að þú sért betri en hinir leikmennirnir og eigir skilið að spila,“ sagði Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham. Sissoko hefur ollið miklum vonbrigðum hjá Tottenham en félagið greiddi Newcastle United 30 milljónir punda fyrir hann á lokadegi félagaskiptagluggans í haust. Sissoko hefur bara byrjað fjóra deildarleiki á tímabilinu og aðeins einu sinni leikið allar 90 mínúturnar í deildarleik. Frakkinn hefur ekkert spilað í ensku úrvalsdeildinni síðan hann fékk þriggja leikja bann fyrir að gefa Harry Arter, leikmanni Bournemouth, olnbogaskot í leik liðanna 22. október síðastliðinn. Pochettino segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með hinn 27 ára gamla Sissoko. „Ef þú kaupir leikmann sem stenst ekki væntingar og aðrir eiga meira skilið að spila, af hverju áttu að nota leikmanninn sem kostaði mikið?“ sagði Pochettino um Sissoko. „Hann þarf að sjálfsögðu að leggja hart að sér og sýna að hann eigi skilið að vera í liðinu.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Spurs úr leik eftir tap í Monaco | Sjáðu mörkin Tottenham Hotspur er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap fyrir Monaco á útivelli í kvöld. 22. nóvember 2016 21:45 Moses skaut Chelsea á toppinn með sjöunda sigrinum í röð | Sjáðu mörkin Chelsea varð í dag fyrsta liðið til að vinna Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Victor Moses tryggði sigurinn með marki af fjærstönginni í síðari hálfleik. 26. nóvember 2016 19:15 Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira
Spurs úr leik eftir tap í Monaco | Sjáðu mörkin Tottenham Hotspur er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap fyrir Monaco á útivelli í kvöld. 22. nóvember 2016 21:45
Moses skaut Chelsea á toppinn með sjöunda sigrinum í röð | Sjáðu mörkin Chelsea varð í dag fyrsta liðið til að vinna Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Victor Moses tryggði sigurinn með marki af fjærstönginni í síðari hálfleik. 26. nóvember 2016 19:15