Gylfi lagði upp mark í enn einu tapi Swansea Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2016 22:00 Wayne Routhledge fagnar eftir að hafa skallað boltann í mark Stoke eftir fyrirgjöf Gylfa. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp mark Swansea City í 3-1 tapi fyrir Stoke City á Bet365 vellinum í lokaleik 10. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gylfi var fyrirliði Swansea í leiknum í kvöld. Wilfried Bony kom Stoke yfir á 3. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir sendingu Joe Allen. Bony skoraði þarna gegn sínu gömlu félögum. Forysta Stoke entist aðeins í fimm mínútur. Á 8. mínútu sendi Gylfi boltann fyrir á kollinn á Wayne Routhledge sem skallaði framhjá Lee Grant í marki Stoke. Þetta var önnur stoðsending Gylfa á tímabilinu en hann hefur komið með beinum hætti að fjórum af níu mörkum Swansea í vetur. Staðan var 1-1 í hálfleik. Swansea-menn gátu vel við þá stöðu unað en leikmenn Stoke skutu þrisvar sinnum í marksúlur gestanna í fyrri hálfleik; Charlie Adam tvisvar sinnum og Marko Arnautovic einu sinni. Alfie Mawson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark á 55. mínútu og Bony skoraði svo sitt annað mark á 73. mínútu og gulltryggði sigur Stoke. Swansea er áfram í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar en Stoke, sem hefur unnið þrjá leiki í röð, er komið upp í 12. sætið.
Enski boltinn Mest lesið Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Íslenski boltinn Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enski boltinn Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Besta deild karla á sviðið Sport Fleiri fréttir Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sjá meira