Everton gaf 200.000 pund í söfnun fyrir krabbameinsveikan dreng Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2016 22:24 Bradley heilsar Ashley Williams, varnarmanni Everton. vísir/getty
Bradley Lowery, fimm ára enskur drengur sem glímir við krabbamein, leiddi Jermain Defoe, fyrirliða Sunderland, inn á völlinn þegar liðið mætti Everton á Ljósvangi í kvöld. Bradley litli greindist með krabbamein þegar hann var aðeins eins árs. Hann gekkst undir viðamikla aðgerð árið 2014 þar sem meinið var fjarlægt. En krabbameinið lét aftur á sér kræla í sumar. Meðferðin sem Bradley þarfnast er ekki í boði í Bretlandi og hann þarf því að fara til Bandaríkjanna. Það kostar sitt, nánar tiltekið 700.000 pund, og fjölskylda Bradleys setti af stað söfnun fyrir meðferðinni. Bradley fékk að leiða Defoe inn á völlinn í kvöld og það vakti mikla athygli á söfnuninni. Eftir leikinn bárust svo fréttir af því að Everton hefði gefið 200.000 pund í söfnunina. Félagið greindi einnig frá því að Bradley yrði boðið á leik Everton og Sunderland á Goodison Park seinna á tímabilinu og að áritaðar treyjur frá leiknum í kvöld yrðu settar á uppboð til styrktar söfnuninni. Fjölmargir hafa lagt söfnuninni lið í kvöld en um 500.000 pund hafa þegar safnast.Everton Football Club has pledged a donation of £200,000 to support @Bradleysfight in his brave battle. Donate here: https://t.co/fxR5tYwG5L— Everton (@Everton) September 12, 2016
Enski boltinn Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Sjá meira