Enski boltinn

Agüero í þriggja leikja bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Agüero missir af næstu þremur deildarleikjum Manchester City.
Agüero missir af næstu þremur deildarleikjum Manchester City. vísir/getty
Sergio Agüero, framherji Manchester City, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að gefa Winston Ried, varnarmanni West Ham United, olnbogaskot í leik liðanna um helgina.

Þetta þýðir að Agüero missir af stórleiknum gegn Manchester United laugardaginn 10. september.

Agüero missir einnig af leikjum gegn Bournemouth og Swansea City.

Þetta er mikið áfall fyrir City en Agüero skoraði þrjú mörk í fyrstu þremur umferðunum í ensku úrvalsdeildinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×