Mál Evu gegn Mourinho tekið fyrir í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júní 2016 11:00 Eva Carneiro og sjúkraþjálfarinn Jon Fearn huga að Eden Hazard í uppbótartíma í 2-2 jafntefli Chelsea og Swansea. Vísir/AFP
Í dag hefst málarekstur Evu Carneiro, fyrrum lækni Chelsea, gegn félaginu og Jose Mourinho, fyrrum knattspyrnustjóra þess, í London. Carneiro segir að uppsögn hennar hjá félaginu hafi verið ólögmæt en hún var sett til hliðar eftir ósætti við Mourinho vegna atviks sem átti sér stað í leik Chelsea gegn Swansea í fyrstu umferð síðasta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Carneiro og sjúkraþjálfarinn Jon Fearn hlupu inn á völlinn til að hlúa að Eden Hazard sem þýddi að Belgíumaðurinn þurfti að fara tímabundið út af eftir aðhlynninguna. Chelsea var því með níu menn inni á vellinum á þeim tíma þar sem að Thibaut Courtois hafði verið vikið af velli með rautt spjald fyrr í leiknum. Sjá einnig: Heimurinn fær að vita hvað stóð í SMS sendingum Mourinho til Evu Málið var fyrst tekið fyrir í janúar og febrúar en þá fóru vitnaleiðslur fram fyrir luktum dyrum. En í þetta sinn mun gerðardómurinn vera opinn almenningi og fjölmiðlum og gætu því ýmsar upplýsingar komið fram sem gætu komið málsaðilum illa, svo sem SMS-sendingar og tölvupóstar. Aðilar gætu náð samkomulagi en svo virðist þó sem að málið muni hefjast eins og áætlað var í dag. Mourinho var á miðju síðasta tímabili rekinn frá Chelsea og hefur nú verið ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn KR - ÍA | Mætast aðra umferðina í röð Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Sjá meira