Heimurinn fær að vita hvað stóð í SMS sendingum Mourinho til Evu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2016 23:30 Eva Carneiro hleypur inn á völlinn þegar Eden Hazard meiddist gegn Swansea þann 8. ágúst 2015. Vísir/Getty
Jose Mourinho mun taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Manchester United á næstu dögum en áður en hann getur farið að setja saman liðið sitt á Old Trafford þá á hann enn eftir að gera upp málið sem átti örugglega þátt í endalokum hans á Stamford Bridge. Eva Carneiro, fyrrum læknir Chelsea-liðsins, var rekin úr sínu starfi eftir deilur við Jose Mourinho síðasta haust. Það verður réttað í máli hennar 6. júní næstkomandi og þar mun ýmislegt koma fram í dagsljósið. Eva Carneiro ætlar að sækja rétt sinn og heimta bætur frá Chelsea fyrir óréttmæta uppsögn sína. Meðal þess sem verður lagt fram sem sönnunargögn í málinu verða bæði SMS skilaboð og tölvupóstar frá Jose Mourinho til Evu. Daily Mail segir frá því að það getið orðið vandræðalegur lestur fyrir portúgalska knattspyrnustjórann. Jose Mourinho mun einnig þurfa að mæta í réttinn og bera vitni í málinu en hann setti Evu út af sakramentinu þegar hann var ósáttur með það þegar hún fór inná á lokamínútunum í leik Swansea og Chelsea til að huga að meiddum leikmanni. Edin Hazard þurfti þar með að yfirgefa völlinn þegar Chelsea var að reyna að tryggja sér sigur á lokasekúndum leiksins og Jose Mourinho missti gjörsamlega stjórn á sér. Jose Mourinho talað meðal annars um barnslega hegðun hjá lækninum sem fékk ekki í framhaldinu að koma nálægt leikjum liðsins eftir það. Eva var á endanum látin taka pokann sinn. Eva var mjög ósátt með endalok sín hjá Chelsea og samskipti hennar við Jose Mourinho urðu að miklu fjölmiðlafári. Jose Mourinho entist ekki mikið lengur en Eva á Brúnni því hann var rekinn í desember. Eva Carneiro hefur fundið sér nýtt starf en hún vinnur nú á heilsumiðstöð í Gíbraltar og í nóvember giftist hún könnuðinum Jason Cateret.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Sjá meira