Ætlar Gerrard virkilega að velja MK Dons? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2016 09:15 Steven Gerrard. Vísir/Getty
Enskir fjölmiðlar velta áfram fyrir sér framtíðaráformum enska miðjumannsins Steven Gerrard sem er að koma heim til Englands eftir tveggja ára dvöl hjá bandaríska félaginu Los Angeles Galaxy. Nýjustu fréttir herma að Steven Gerrard hafi verið í viðræðum við MK Dons um að hann setjist í knattspyrnustjórastól félagsins. BBC segir meðal annars frá. Steven Gerrard er goðsögn hjá Liverpool og fyrirliði liðsins í meira en áratug. Flestir sáu hann snúa aftur á Anfield en hann hefur einnig verið orðaður við félög sem er undir stjórn gömlu stjóra hans hjá Liverpool. Steven Gerrard spilaði aldrei fyrir Jürgen Klopp, núverandi knattspyrnustjóra Liverpool, en hann spilaði fyrir Brendan Rodgers, núverandi stjóra Celtic í skosku úrvalsdeildinni og hann spilaði fyrir Rafael Benítez, núverandi stjóra Newcastle í ensku b-deildinni. Gerrard hefur líka verið orðaður við þau félög. MK Dons er hinsvegar að leita sér að knattspyrnustjóra og Steven Gerrard er einn af þeim sem koma til greina. Hann er aftur á móti ekki ein kosturinn. Steven Gerrard er 36 ára gamall og gæti eflaust spilað eitt til tvö tímabil í viðbót. Hann hefur áhuga á því að fara út í þjálfun og er um það bil að klára UEFA A þjálfaragráðuna. Það er margir sem bíða spenntir eftir því hvar Gerrard endi og því má búast við því að ensku fjölmiðlarnir haldi áfram að koma með fréttir af framtíðaplönum hans þangað til að allt skýrist betur. Það væri hinsvegar sárt fyrir margan stuðningsmann Liverpool að sjá hann fara til MK Dons frekar en að koma aftur heim á Anfield. Milton Keynes Dons féll úr ensku b-deildinni á síðasta tímabili og er eins og er í 21. sæti í ensku C-deildinni. Liðið er í fallsæti eftir aðeins fjóra sigurleiki í fyrstu sautján umferðunum og á það því á hættu að falla niður um deild annað árið í röð. Milton Keynes Dons var áður hið fræga Wimbledon-lið en félagið lítur samt svo á að Wimbledon hafi ekki flutt til Milton Keynes í september 2003 heldur hafi Milton Keynes Dons verið stofnað árið 2004 þegar menn tóku upp núverandi merki og liti á búningum sínum.
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira