Joey Barton súr í sigurhátíð liðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2016 07:45 Joey Barton var ekki sáttur. Vísir/Getty
Joey Barton var ekki alltof sáttur í gærkvöldi þrátt fyrir að það væri tilvalið tilefni til að fagna sæti í ensku úrvalsdeildinni með félögum sínum í Burnley-liðinu. Burnley tryggði sér sigur í ensku b-deildinni um helgina og endurheimti þar með sæti sitt í úrvalsdeildinni eftir aðeins eins árs fjarveru. Joey Barton var hinsvegar skilinn útundan þegar kom að því að láta leikmenn liðsins fá verðlaunapening. Joey Barton átti mjög flott tímabil og er leikmaður ársins hjá félaginu en hann mætti seint á verðlaunaafhendinguna og missti fyrir vikið af því að fá gullpening um hálsinn. Barton var greinilega mjög súr yfir þessu því hann neitaði að lyfta bikarnum þegar hann var látinn ganga á milli leikmanna liðsins. Eftir hátíðina fór hann inn á Twitter. „Enginn verðlaunapeningur. Hvað er eiginlega í gangi?," skrifaði Joey Barton á Twitter-síðu sína. Enska b-deildin gaf Burnley skýr fyrirmæli um það að aðeins 25 verðlaunapeningar væru í boði. Það mættu hinsvegar 27 leikmenn Burnley í verðlaunaafhendinguna. Joey Barton var því ekki sá eini sem fékk ekki verðlaunapening því varnarmaðurinn James Tarkowski var heldur ekki með gull um hálsinn. Joey Barton spilaði 38 leiki með Burnley í ensku b-deildinni og var með 3 mörk, 3 stoðsendingar og 9 gul spjöld í þeim en hann fékk ekki rautt spjald allt tímabilið. Mikilvægasta mark Joey Barton var vafalaust sigurmark hans á móti Preston en það mark kom liðinu á toppinn í lok tímabilsins þar sem liðið hélt sína til út tímabilið.Vísir/GettyVísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leik lokið: KR - ÍA 5-1| Hefndu ófaranna á Skaganum Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira