West Ham setur rútu-bullurnar í ævilangt bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2016 07:15 Það rigndi öllu lauslegu yfir rútuna í gær. Vísir/Getty
West Ham mun ekki taka léttvægt á þeim stuðningsmönnum félagsins sem réðust á liðsrútu Manchester United fyrir leik liðanna á Upton Park í gærkvöldi. West Ham var að kveðja Upton Park í gær þar sem félagið hefur spilað heimaleiki sína í 112 ár og liðið endaði veru sína á vellinum með því að vinna 3-2 endurkomusigur á Manchester United. Það var þó slæm framkoma stuðningsmannanna sem setti svartan blett á annars magnað kvöld á Boleyn Ground. 99 prósent stuðningsmanna West Ham höguðu sér vel og sungu ógleymanlega inn á vellinum í leikslok en lögreglu og öryggisvörðum tókst ekki að halda aftur af nokkrum ólátabelgjunum. West Ham sendi frá sér fréttatilkynningu til enskra fjölmiðla í morgun þar sem fram kemur að umræddir stuðningsmenn verði settir í ævilangt bann en forráðamenn West Ham munu leita sökudólganna með hjálp lögreglunnar. BBC segir frá. Það sást mikið á rútu Manchester United eftir að flöskum og öðru rigndi yfir hana og á endanum þurfti að seinka leiknum um 45 mínútur þar sem það gekk svo illa að koma rútunni í gegnum mannhafið og í skjól við leikvanginn.Sjá einnig:Sjáðu hvernig rúta Man. Utd. leit út eftir aðkomuna að Upton Park Leikmönum Manchester United var vissulega brugðið að þurfa að upplifa svona ástand svona rétt fyrir mikilvægan leik en hvort þessi lífsreynsla sé ein af ástæðunum fyrir tapinu verður þó aldrei sannað. Tapið þýðir hinsvegar að Manchester United þarf að treysta á það að vinna Bournemouth í lokaumferðinni á sunnudaginn og að Manchester City tapi á móti Swansea. Öll önnur úrslit þýða að City fer í Meistaradeildina á kostnað nágranna sinna í United.
Enski boltinn Tengdar fréttir Liðsrúta United grýtt og leiknum seinkað vegna óeirða Það er allt vitlaust fyrir utan Upton Park þar sem West og Manchester United áttu að mætast klukkan 18.45. 10. maí 2016 18:28 Sjáðu hvernig rúta Man. Utd. leit út eftir aðkomuna að Upton Park | Myndir Stuðningsmenn West Ham láta öllum illum látum fyrir síðasta heimaleikinn á Upton Park. 10. maí 2016 18:43 West Ham vann síðasta heimaleikinn á Upton Park og gerði United mikinn grikk | Sjáðu mörkin Manchester City í bílstjórasætinu um Meistaradeildarsæti eftir sigur West ham gegn Manchester United. 10. maí 2016 21:30 Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira
Liðsrúta United grýtt og leiknum seinkað vegna óeirða Það er allt vitlaust fyrir utan Upton Park þar sem West og Manchester United áttu að mætast klukkan 18.45. 10. maí 2016 18:28
Sjáðu hvernig rúta Man. Utd. leit út eftir aðkomuna að Upton Park | Myndir Stuðningsmenn West Ham láta öllum illum látum fyrir síðasta heimaleikinn á Upton Park. 10. maí 2016 18:43
West Ham vann síðasta heimaleikinn á Upton Park og gerði United mikinn grikk | Sjáðu mörkin Manchester City í bílstjórasætinu um Meistaradeildarsæti eftir sigur West ham gegn Manchester United. 10. maí 2016 21:30