Van Gaal ekki á förum: „Sjáumst á næsta ári“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. maí 2016 13:00
Það er ekkert fararsnið á Louis van Gaal, knattspyrnustjóra Manchester United, þrátt fyrir þráláta orðróma og fréttir þess efnis að Hollendingurinn verði látinn fara eftir tímabilið og José Mouriho taki við. Van Gaal sendi ársmiðahöfum Manchester United bréf þar sem hann hvetur þá til að endurnýja miðana fyrir næsta tímabil og ítrekar að hann vill vinna titla sem stjóri United áður en hann lætur af störfum eftir næsta tímabil. „Það er engin spurning í mínum huga að stuðningsmenn Manchester United eru þeir bestu í heimi og samband mitt við þá er mjög sérstakt,“ segir Van Gaal í bréfinu en fótboltavefurinn Goal.com greinir frá. „Það er mitt helsta markmið að vinna titla fyrir stuðningsmennina og sérstaklega ykkur sem mætið á leikina í hverri viku.“ „Það vinna allir hörðum höndum að því að koma félaginu aftur á þann stall sem það á að vera. Ykkar hjálp er ómetanleg og leikmennirnir kunna vel að meta hana,“ segir Van Gaal. Van Gaal er staðráðinn í því að klára samninginn sinn en hann var ráðinn til þriggja ára þegar hann tók við sumarið 2014. Hann hlakkar til að mæta aftur á næsta tímabili og virðist alveg sama um sögusagnirnar um Mourinho. „Við vissum að þessi uppbygging myndi taka þrjú ár. Ég vildi bara gera tveggja ára samning en félagið vildi gera við mig þriggja ára samning. Ég skrifaði undir þrjú ár þannig við sjáumst á næsta ári,“ segir Louis van Gaal.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Crystal Palace - Tottenham | Margir í banni hjá gestunum Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira