Montdagur fyrir alla stuðningsmenn Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2016 12:30 Tvöfaldir meistarar Tottenham 1960-61. Vísir/Getty
Tottenham missti af Englandsmeistaratitlinum á mánudagskvöldið en stuðningsmenn félagsins geta þó aðeins montað sig í dag. Fyrir nákvæmlega 55 árum síðan varð lið Tottenham Hotspur tvöfaldur meistari fyrst enskra liða á tuttugustu öldinni. Tottenham tryggði sér þá enska bikarinn eftir 2-0 sigur á Leicester City á Wembley. Bobby Smith og Terry Dyson skoruðu mörkin. Nítján dögum fyrr eða 17 apríl 1961, varð Tottenham enskur meistari eftir 2-1 sigur á Sheffield Wednesday. Tottenham endaði með átta stigum meira en Wednesday-liðið sem varð í öðru sæti. Danny Blanchflower, miðjumaður Tottenham, var kosinn leikmaður ársins af enskum blaðamönnum. Hann var fyrirliði Tottenham-liðsins. Bill Nicholson var stjóri Spurs en hann réði ríkjum hjá Tottenham frá 1958 til 1974 og hafði áður spilað yfir 300 leiki fyrir félagið frá 1938 til 1955. Tottenham hefur ekki unnið enska titilinn aftur á þessum 55 árum sem eru liðin en sjaldan verið líklegri til þess en á þessu tímabili. Næsta lið til að vinna tvöfalt í Englandi var Arsenal sem afrekaði það tíu árum síðar. Liverpool bættist síðan í hópinn 1985–86 og Manchester United náði síðan að vinna þrisvar sinnum tvöfalt á tíunda áratugnum. Síðasta lið til að vinna tvöfalt var lið Chelsea sem náði því 2009-10 en þá voru liðin átta ár síðan Arsenal náði því í þriðja sinn 2001-02. Félög sem hafa unnið tvennuna í Englandi:Manchester United 3 sinnum (1993–94, 1995–96, 1998–99)Arsenal 3 sinnum (1970–71, 1997–98, 2001–02)Tottenham Hotspur 1 sinni (1960–61)Liverpool 1 sinni (1985–86)Preston North End 1 sinni (1888–89)Aston Villa 1 sinni (1896–97)Chelsea 1 sinni (2009–10)Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira