Frír bjór í boði fyrir stuðningsmenn Leicester á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2016 23:15 Jamie Vardy. Vísir/Getty
Mikil sigurhátíð verður hjá Leicester City á morgun þegar liðið fagnar Englandsmeistaratitli sínum eftir leik á móti Everton. Leicester City tryggði sér titilinn á mánudagskvöldið án þess að spila þökk sé jafntefli Tottenham og Chelsea og stuðningsmenn Leicester City hafa í langan tíma gert nánast allt til að redda sér miða á þennan síðasta heimaleik á þessu ótrúlega tímabili. Ævintýri Leicester City er engu öðru líkt og það eiga margir erfitt með að trúa því að þeir hafi haldið út og tryggt sér titilinn á undan öllum risunum sem eru í ensku úrvalsdeildinni. Til að þakka fyrir stuðninginn á tímabilinu þá ætlar Leicester City í samvinnu við bjórframleiðandann Singha Beer að gefa stuðningsmönnum frían bjór á leiknum á morgun. Allir þeir sem hafa keypt sér miða í gegnum Leicester City fá frían Singha bjór en þeir sem drekka ekki geta fengið vatn. Þeir sem eru ekki orðnir 18 ára munu að sjálfsögðu ekki fá bjór. Það er reyndar bara einn bjór á hvern miða og bjórinn verður aðeins afhentur í tvo tíma fyrir leikinn. Það þarf enginn að efast um það að þeir sem hafa yfir höfuð redda sér miða á þennan sögulega leik verða örugglega mættir Filbert Way löngu fyrir fyrsta flaut. Leikur Leicester City og Everton á King Power leikvanginum í Leicester hefst klukkan 16.30 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Það er hægt að lesa um þetta sigurtilboð á heimasíðu Leicester City.
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira