Gæti fagnað sigri í tveimur efstu deildum Englands sama tímabilið Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. apríl 2016 08:00 Tveir titlar sama árið. vísir/getty
Belgíski varnarmaðurinn Ritche De Laet er heldur betur í áhugaverðri stöðu fyrir lokaumferðir ensku úrvalsdeildarinnar og ensku B-deildarinnar. Hann gæti fengið verðlaunapening fyrir sigur í þeim báðum sama tímabilið. Þessi 27 ára gamli leikmaður, sem kom upphaflega til Englands til að spila með Stoke árið 2007 en var svo í herbúðum Manchester United frá 2009-2012, er samningsbundinn Leicester í dag. Hann hóf tímabilið með Leicester en var svo lánaður á miðju tímabili til Middlesbrough sem er í toppbarátunni í B-deildinni. Leicester getur orðið Englandsmeistari á sunnudaginn vinni liðið Manchester United á Old Trafford og Middlesbrough getur komist á toppinn í B-deildinni á föstudagskvöldið með sigri á Birmingham. Middlesbrough þarf síðan að vinna Brighton í lokaumferðinni, sem er í þriðja sæti B-deildarinnar, til að tryggja sér sigur í deildinni og mögulega þarf það að komast upp fyrir Burnley á markatölu en Burnley er með einu marki meira í plús. Belginn spilaði tólf leiki fyrir Leicester áður en hann var lánaður til Boro í janúar þar sem hann er búinn að spila níu leiki fyrir lærisveina Aitor Karanka. Aðeins þarf að spila fimm leiki í úrvalsdeildinni til að fá verðlaunapening og því er De Laet gjaldgengur til þess. Sigurlið B-deildarinnar fá svo 18 verðlaunapeninga til að dreifa á liðið hvernig sem það vill en það getur sótt um fleiri. Samkvæmt frétt Sky Sports verður Ritche De Laet fyrsti maðurinn í sögunni sem vinnur bæði ensku úrvalsdeildina og ensku B-deildina sama tímabilið.
Enski boltinn Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Fótbolti Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjá meira