Hornspyrna Gylfa kom Swansea á bragðið gegn Liverpool | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. maí 2016 12:45 Gylfi og Ayew áttu heiðurinn að fyrsta marki Swansea. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp fyrsta mark Swansea City í 3-1 sigri á Liverpool í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Swansea komst með sigrinum upp í 13. sæti deildarinnar en Liverpool er enn í því sjöunda. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, stillti upp veiku liði á Liberty-vellinum í dag og hans menn voru í miklum vandræðum gegn spræku Swansea-liði. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og sóttu stíft. Pressan bar svo árangur á 20. mínútu þegar André Ayew stangaði hornspyrnu Gylfa í netið. Þetta var þriðja stoðsending Gylfa á tímabilinu. Jack Cork kom Swansea í 2-0 með fallegu skoti á 33. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Klopp gerði tvær breytingar í hálfleik og annar varamaðurinn, Christian Benteke, minnkaði muninn fyrir Liverpool á 65. mínútu með sínu áttunda deildarmarki í vetur. Gleði gestanna var þó skammvinn því aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Ayew sitt annað mark og kláraði leikinn fyrir Swansea. Fjórtán mínútum fyrir leikslok fékk Bradley Smith, leikmaður Liverpool, að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það breytti þó engu um úrslitin. Lokatölur 3-1, Swansea í vil.Swansea 1-0 Liverpool Swansea 2-0 Liverpool Swansea 2-1 Liverpool Swansea 3-1 Liverpool
Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Fleiri fréttir Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Sjá meira