Tvíeykið hjá Tottenham sem enginn ræður við þessa dagana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2016 11:30 Harry Kane og Dele Alli. Vísir/Getty
Tottenham minnkaði forskot Leicester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fimm stig með sannfærandi 4-0 sigri á Stoke City í gær. Fjórar umferðir eru eftir og tólf stig því enn í pottinum. Ætli Tottenham að setja alvöru pressu á Leicester þá þurfa ensku landsliðsmennirnir Harry Kane og Dele Alli að halda áfram uppteknum hætti. Þessir ungu ensku landsliðsmenn, Harry Kane er 22 ára og Dele Alli er 20 ára, hafa verið algjörlega óstöðvandi upp á síðkastið en þeir skoruðu báðir tvö mörk í gærkvöldi. „Við erum ekkert að fara neitt," sagði Harry Kane eftir leikinn. „Við teljum að við getum náð þeim. Leicester er enn í ökumannssætinu en við höfum fjóra leiki til að vinna upp forskotið," sagði Kane. Tottenham hefur nú spilaði sex deildarleiki í röð án þess að tapa og fjórir þeirra hafa unnist. Tottenham er með fjórtán stig og fimmtán mörk í þessum sex leikjum. Harry Kane hefur skorað 8 mörk í þessum sex leikjum og Dele Alli er með 3 mörk og 4 stoðsendingar. Þeir hafa því skorað saman 11 af síðustu 15 mörkum Spurs-liðsins og Alli hefur lagt upp fjögur mörk fyrir Kane í undanförnum sex leikjum Tottenham. Harry Kane náði tveggja marka forskoti á Jamie Vardy á listanum yfir markahæstu menn ensku úrvalsdeildarinnar með þessum tveimur mörkum í gær en Sergio Agüero er síðan þriðji, þremur mörkum á eftir Kane. Harry Kane hefur alls skorað 24 mörk í 34 leikjum á tímabilinu en Dele Alli náði að skora sitt tíunda mark í gær. Alli hefur einnig gefið 9 stoðsendingar. Síðustu fjórir leikir Tottenham er á móti West Bromwich Albion á heimavelli, á móti Chelsea á útivelli, á móti Southampton á heimavelli og á móti Newcastle á útivelli.
Enski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Fleiri fréttir Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Sjá meira