Klopp: Framtíð Coutinho liggur hjá Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. nóvember 2016 16:30 Jürgen Klopp er vongóður um að halda Coutinho. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, segist viss um að framtíð brasilíska framherjans Philippe Coutinho liggi hjá Liverpool þrátt fyrir að orðrómur um áhuga Barcelona á leikmanninum sé farinn af stað á ný. Coutinho er búinn að spila frábærlega á leiktíðinni fyrir Liverpool sem er á toppnum í fyrsta sinn í rúm tvö ár eða síðan liðið henti frá sér Englandsmeistaratitlinum á vormánuðum 2014. Ekki nóg með að Coutinho sé að spila eins og kóngur í ensku úrvalsdeildinni þá skoraði hann fallegt mark með brasilíska landsliðinu á móti Argentínu í landsleikjavikunni. Ekki var það til að draga úr áhuga stórliða á framherjanum. „Þessa stundina hef ég ekki áhyggjur af neinu. Leikmennirnir eru ánægðir hérna og það er okkar starf að halda stöðunni þannig,“ sagði Klopp á blaðamannafundi í dag. „Mín skoðun er að Coutinho líði vel hérna. Við vonumst allir til og teljum að framtíð hans liggi hjá Liverpool. Við viljum búa til þannig andrúmsloft að enginn vilji fara. Um það snýst þetta.“ „Ef það er eitthvað félag sem getur borgað tvöfalt á við okkur þá mun ég sjálfur fara með leikmanninn þangað. Ég get ekki látið fjölskyldumenn hafna þannig tilboðum þegar þeir þurfa að sjá um konu og börn. Ég veit samt ekki um mörg félög sem hafa bolmagn til að gera það,“ sagði Jürgen Klopp.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Sjá meira