Vesen og vandræði á stuðningsmönnum West Ham á nýja heimavellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2016 08:30 Það voru ólæti á leiknum í gær. Vísir/Getty
West Ham komst áfram í enska deildabikarnum í gær eftir sigur á Chelsea en flottur sigur féll í skuggann á ömurlegri hegðun stuðningsmanna í stúkunni. Stuðningsmönnum West Ham og Chelsea lenti saman í stúkunni og reyndi óeirðalögregla að skakka leikinn. Lögreglan handtók á endanum sjö áhorfendur. BBC segir frá. Ólætabelgirnir köstuðu plastflöskum, sætissetum og peningum á meðan leiknum stóð. Yifr hundrað stuðningsmönnum lenti saman og það var dapurlegt að sjá vandræðin og leiðindin í stúkunni. Þetta er heldur ekki ekki í fyrsta sinn sem að það sýður upp úr í stúkunni á heimaleikjum West Ham á þessu tímabili. Það lítur því út fyrir að ólæti West ham áhorfenda ætli að vera fylgifiskur þess að flytja frá Upton Park og á nýja völlinn London Stadium. Slaven Bilic, knattspyrnustjóri West Ham, var mjög ósáttur og harðorður gagnvart hegðun stuðningsmannanna eftir leikinn. Hann talaði um óásættanlega hegðun og að félagið væri algjörlega á móti þessu. Einn áhorfandi talaði við BBC: „Þetta var eins og á áttunda áratugnum. Magnið af klinki og sætum sem var kastað. Þetta var algjör martröð. Það var fólk mætt á leikinn til þess að skapa vandræði og þau vildu vera þar í fararbroddi,“ sagði umræddur áhorfandi. Forráðamenn West Ham hafa líka gefið það út að allir stuðningsmenn West Ham sem komu að ólætunum verði settir í lífstíðarbann frá leikjum liðsins. Öryggisgæslan var stóraukin fyrir þennan Lundúnaslag og þá var líka áfengisbann í gildi í tengslum við leikinn. Ólæti fyrr á tímabilinu kölluðu á slíkar aðgerðir en það var samt ekki nóg til að koma í veg fyrir þessi læti í stúkunni. Fyrsta tímabil West Ham á Ólympíuleikvanginum er rétt svo hafið en samt hafa 23 stuðningsmenn verið settir í bann. Það voru ólæti á bæði leik liðsins á móti Middlesbrough 1. október sem og á móti Watford í september.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira