Mkhitaryan hetjan í langþráðum heimasigri Man Utd | Sjáðu markið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. desember 2016 16:00
Henrikh Mkhitaryan skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United tók á móti Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti deildarsigur United á heimavelli frá 24. september. United er enn í 6. sæti deildarinnar en nú með 24 stig. Tottenham er áfram með 27 stig í 5. sætinu. United var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og átti hættulegri sóknir. Hugo Lloris var frábær í marki Tottenham líkt og David De Gea í marki United. Mkhitaryan skoraði eina mark leiksins og sitt fyrsta deildarmark fyrir United á 29. mínútu. Harry Kane tapaði þá boltanum á miðjunni, Ander Herrera var fljótur að hugsa og stakk boltanum inn fyrir á Mkhitaryan sem þrumaði boltanum í þaknetið, óverjandi fyrir Lloris. Tottenham sótti í sig veðrið í seinni hálfleik en fékk samt bara eitt dauðafæri. Það féll í skaut Victors Wanyama en slakur skalli hans hitti ekki markið. Christian Eriksen átti auk þess tvö góð skot sem De Gea varði vel. Um miðjan seinni hálfleikinn átti Pogba skot beint úr aukaspyrnu sem small í samskeytunum. Skömmu síðar varði Lloris frá honum úr góðu færi. Mkhitaryan var borinn af velli fimm mínútum fyrir leikslok eftir tæklingu Dannys Rose. Það breytti þó engu um úrslitin. Lokatölur 1-0, United í vil.
Enski boltinn Mest lesið Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Sjá meira