Shearer: Newcastle hefði átt að skipta fyrr um stjóra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. maí 2016 17:15 Benítez og lærisveinar hans eiga veika von um að bjarga sér frá falli. vísir/getty
Alan Shearer segir að stjórn Newcastle United hafi brugðist of seint við þegar hún rak Steve McClaren og réði Rafa Benítez. Benítez tók við starfi knattspyrnustjóra Newcastle um miðjan mars og undir hans stjórn hefur liðið náð í 10 stig af 27 mögulegum. Newcastle er samt sem áður í afar erfiðum málum. Liðið er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 34 stig, einu stigi á eftir Sunderland sem er í sætinu fyrir ofan. Sunderland á hins vegar tvo leiki eftir en Newcastle aðeins einn og með sigri á Everton á miðvikudaginn tryggir Sunderland sér áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni. „Það er mjög ólíklegt að Newcastle haldi sér uppi úr þessu og félagið getur bara sjálfu sér um kennt,“ sagði Shearer sem tók við Newcastle þegar átta leikir voru eftir 2009 en tókst ekki að bjarga liðinu frá falli. „Ég vissi að það var ekki nógu langur tími. Ef ég hefði fengið 4-5 leiki í viðbót tel ég að við hefðum bjargað okkur. Núna fékk Rafa Benítez aðeins 10 leiki til að bjarga Newcastle og ef hann hefði verið ráðinn fyrr væri félagið ekki í þessari stöðu. „Þetta er of lítið, of seint, aftur. Það tók Rafa fjóra leiki að finna sitt lið og ef það tók heimsklassastjóra eins og hann þetta langan tíma, þá er ljóst að það hefði átt að skipta um stjóra fyrr. „Ef Newcastle fellur er ekki hægt að klína sökinni á Rafa og það sorglega er að félagið mun eflaust missa hann eftir tímabilið.“Shearer er goðsögn hjá Newcastle.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira