Mourinho hefur borgað 40 milljónir í sektir og ein stór á leiðinni | Sjáðu sektirnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2016 11:00 Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er duglegur að mótmæla dómum. Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, missti enn á ný stjórn á sér um helgina þegar lið hans gerði 1-1 jafntefli á heimavelli á móti West Ham. Mourinho brjálaðist á 27. mínútu eftir að Paul Pogba fékk að líta gula spjaldið fyrir leikaraskap sem var hárréttur dómur hjá Jon Moss, dómarara leiksins. Jon Moss rak portúgalska stjórann upp í stúku og þar horfði hann upp á sína menn mistakst enn einu sinni að landa sigri á heimavelli. Heimasigrarnir eru nú aðeins tveir í sjö leikjum á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Jose Mourinho var nýkominn til baka eftir að hafa verið rekinn upp í stúku og tekið í framhaldinu út eins leiks bann. Hann fer væntanlega í tveggja leikja bann að þessu sinni auk þess að fá væna sekt fyrir framkomu sína. Daily Mail tók saman sektirnar sem enska knattspyrnusambandið og evrópska knattspyrnusambandið hafa dæmt Jose Mourinho til að greiða á meðan hann hefur starfað í ensku úrvalsdeildinni. Mourinho var búinn að borga 288 þúsund pund í sektir fyrir atburði helgarinnar en það eru 40,6 milljónir íslenskra króna á núvirði.Allar sektir Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildinni.Knattspyrnustjóri ChelseaJanúar 2005 - 5 þúsund pund (Sakaði Man. United um að svindla í undanúrslitaleik enska deildabikarsins)Febrúar 2005 - 9 þúsund pund og 2 leikja bann (Gagnrýndi dómarann Anders Frisk eftir 2-1 tap á móti Barcelona)Júní 2005 - 75 þúsund pund (Tala ólöglega við Ashley Cole)Október 2013 - 8 þúsund pund (Anthony Taylor rak hann upp í stúku í 4-1 sigri á Cardiff)Mars 2014 - 8 þúsund pund (Chris Foy rak hann upp í stúku í 1-0 tapi fyrir Aston Villa)Apríl 2014 - 10 þúsund pund (Fyrir að kalla dómarann „frábæran“ eftir 2-1 tap fyrir Sunderland)Janúar 2015 - 25 þúsund pund (Hélt því fram að það væri samsæri meðal dómara í að dæma að móti hans liði)Október 2015 - 50 þúsund pund og 1 leiks bann (Gagnrýndi dómarana eftir 3-1 tap á móti Southampton)Nóvember 2015 - 40 þúsund pund og 1 leiks bann (Öskraði á Jon Moss dómara í hálfleik í tapleik á móti West Ham)Knattspyrnustjóri Manchester UnitedNóvember 2016 - 58 þúsund pund og 1 leiks bann (Rekinn upp í stúku í leik á móti Burnley og fyrir að tala um Anthony Taylor dómara fyrir leik United og Liverpool)Nóvember 2016 - ?? (Rekinn upp í stúku í leik á móti West Ham)
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira