Gaston Ramirez með sigurmarkið á móti gamla félaginu sínu | Sjáðu markið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2016 21:45
Middlesbrough hoppaði upp um þrjú sæti eftir 1-0 sigur í fallbaráttuslag á móti Hull City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Úrúgvæmaðurinn Gaston Ramirez var hetja kvöldsins. Nýliðarnir mættust þarna í lokaleik fjórtándu umferðar. Hull er áfram í næstneðsta sæti eftir tapið en Middlesbrough er nú komið upp í þrettánda sæti. Yfirburðir Middlesbrough í leiknum voru talsverðir en gestirnir í Hull áttu alltaf möguleika á meðan heimamenn náðu ekki að bæta við mörkum. Hull átti eitt alvöru skot á markið og það kom undir blálok leiksins. Middlesbrough fór upp fyrir Crystal Palace, Burnley og Leicester City með þessum sigri. Englandsmeistararnir í Leicester eru þar með aðeins tveimur sætum frá fallsæti. Gaston Ramirez skoraði eina mark leiksins á 60. mínútu þegar hann skallaði inn hornspyrnu frá Viktor Fischer. Gaston Ramirez var þarna að skora á móti sínum gömlu félögum en hann lék með Hull City tímabilið 2014-15. Þetta var fyrsti sigur Middlesbrough síðan 29. október en liðið hafði aðeins fengið tvö stig út úr síðustu þremur leikjum sínum í deildinni. Hull City hefur nú tapað fimm útileikjum í röð og markatalan í þeim er 16-2, mótherjum þeirra í vil.
Enski boltinn Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti Leik lokið: Ísland - England 0-1| Hetjuleg barátta í seinni dugði ekki til Fótbolti Vignir í dauðafæri og nýtir sér leynivopn á Íslandi Sport Chelsea - Manchester United | Stórleikur á Brúnni Enski boltinn Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Enski boltinn Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Íslenski boltinn Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Íslenski boltinn Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Íslenski boltinn „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Fleiri fréttir „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Chelsea - Manchester United | Stórleikur á Brúnni Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjá meira