Fellaini sást í Mílanó í gær og enskir fjölmiðlar orða hann við ítölsk stórlið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2016 09:30 Marouane Fellaini hefur átt erfitt uppdráttar hjá United á leiktíðinni. Vísir/EPA
Marouane Fellaini, belgíski miðjumaðurinn hjá Manchester United, gæti verið á förum frá félaginu í janúarglugganum. Fellaini er orðaður við ítalska stórliðið AC Milan í frétt í the Times í morgun. Daily Mail segir að bæði Mílanó-liðin vilji fá hann.Blaðamaður the Times segir að Marouane Fellaini sé orðinn mjög pirraður yfir litlum spilatíma með aðalliði United og vilji nú endilega komast í burtu. Fellaini á eftir átján mánuði af samningi sínum við Manchester United en hann hefur aðeins verið einu sinni í byrjunarliði Manchester United undanfarna tvo mánuði. Málið fór á flug þegar Marouane Fellaini sást á flakki með tvíburabróður sínum Mansour í Mílanó í gær. Daily Mail sló því upp í framhaldinu að bæði AC Milan og Internazionale hefðu áhuga á kappanum. Manchester United borgar Marouane Fellaini 120 þúsund pund í vikulaun, 17 milljónir íslenskar, og það eru ekki öll félög sem ráða við það að borga honum slík laun. AC og Inter eru hinsvegar tvö af þeim. Manchester United vill ekki semja aftur við þennan 29 ára gamla leikmann sem kom frá Everton sumarið 2013. United gæti lánað hann en fyrsti kostur er örugglega að reyna að selja hann og ná einhverju til baka af þeim 27,5 milljónum punda, 3,9 milljarðar íslenskra króna, sem félagið borgaði fyrir hann á sínum tíma. Marouane Fellaini hefur spilað 17 leiki og í 925 mínútur í öllum keppnum með Manchester United á tímabilinu en hefur enn ekki átt þátt í marki. Fellaini hefur aftur á móti fengið sex gul spjöld.Vísir/EPA
Enski boltinn Mest lesið Sumir hneykslast á hegðun heimsmeistarans Sport Mourinho grætti Cristiano Ronaldo í klefanum Fótbolti Giftu sig á gamlársdag Handbolti Van Veen síðastur inn í undanúrslit: „Hætti ekki að brosa næstu 24 tímana“ Sport Kemst bakdyramegin inn í sína bestu grein á Ólympíuleikunum Sport Varar íþróttafólk við ákveðinni tegund áfengis Sport Áfall fyrir Heimi Hallgríms og drauminn um að komast á HM Fótbolti „Mjög svekkjandi“ Enski boltinn Arsenal græddi á mistökum dómarans í 1-0 sigrinum á Everton Enski boltinn Sunderland hjálpaði Arsenal með því að taka stig af Man. City Enski boltinn Fleiri fréttir Sunderland hjálpaði Arsenal með því að taka stig af Man. City „Mjög svekkjandi“ Líklegast að Chelsea ráði stjóra Strassborg Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Bitlausir meistarar byrjuðu árið á því að tapa stigum á heimavelli Arsenal græddi á mistökum dómarans í 1-0 sigrinum á Everton Sjáðu Mateta skora fyrsta mark ársins 2026 Biðin mikla hjá Unai Emery tók aðeins nokkrar sekúndur Tók báða Íslendingana út af í hálfleik „Ekki jólin sem ég bjóst við“ Andri Lucas missti af þriðja leiknum í röð og áfram markaleysi án hans Aganefndin í fríi og Romero fær að spila í dag Chelsea búið að reka Enzo Maresca Slá því upp að Maresca gæti verið rekinn frá Chelsea í dag Hvað á Liverpool að gera með Mo Salah og Alexander Isak? Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik „Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni“ Liðið sem gerir stólpagrín að xG Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Sjá meira