Sakna íslensku landsliðsmannanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2015 14:00
Tvö lið í ensku b-deildinni sem hafa verið ofarlega í huga íslenskra knattspyrnuáhugamanna undanfarin ár eru í miklum vandræðum í upphafi tímabilsins og framundan er lífróður að halda sæti sínu í deildinni. Bolton Wanderers og Rotherham United eiga það bæði sameiginlegt að sitja í tveimur neðstu sætum ensku b-deildarinnar og að hafa misst íslenskan landsliðsmann fyrir tímabilið. Eiður Smári Guðjohnsen samdi ekki aftur við Bolton heldur ákvað hann að fara í ævintýri til Kína og spila með liði Shijiazhuang Ever Bright. Kári Árnason yfirgaf Rotherham United eftir þrjú tímabil og samdi við sænska liðið Malmö FF. Kári spilar nú í Meistaradeildinni. Það er óhætt að segja að Bolton og Rotherham sakni íslensku liðsmannanna á þessum tímabili. Bolton Wanderers hefur aðeins skorað 10 mörk í fyrstu 16 leikjunum og það sem meira er að liðið hefur bara unnið einn leik. Ekkert lið í ensku b-deildinni hefur skorað svo fá mörk til þessa á tímabilinu. Bolton er bara með 11 stig en samt með tveimur stigum meira en Rotherham-liðið sem hefur aðeins náð í 9 af 48 stigum í boði til þessa. Varnarleikurinn er í ruglinu án Kára en liðið hefur fengið á sig langflest mörk eða 34 í 16 leikjum. Rotherham heftur þannig skorað 7 mörkum fleiri en Bolton en Bolton hefur aftur á móti fengið á sig 12 færri mörk. Tölfræðin sýnir það svart á hvítu að sóknarleikur Bolton er ekki sá sami án Eiðs Smára Guðjohnsen og varnarleikur Rotherham er í miklum vandræðum án Kára Árnasonar. Svo gæti því farið að bæði liðin falli úr deildinni í vor.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira