Man. Utd valtaði yfir Man. City | Sjáðu mörkin 12. apríl 2015 00:01
Manchester United niðurlægði nágranna sína í Man. City, 4-2, er liðin mættust á Old Trafford í dag. Manchester-borg er rauð í dag. Man. City byrjaði leikinn með miklum látum og mark lá strax í loftinu. Það kom á 8. mínútu. David Silva fékk boltann í teignum, lagði boltann fyrir markið þar sem Aguero var illa valdaður og hann var ekki í neinum vandræðum með skora.Fimmta markið hans í síðustu fjórum leikjum gegn Man. Utd. Man. Utd vaknaði heldur betur við markið og nokkrum mínútum síðar jafnaði liðið. Herrera með sendingu fyrir markið og eftir smá klafs endaði boltinn hjá Ashley Young sem jafnaði. Jöfnunarmarkið kveikti svo vel í heimamönnum og Marouane Fellaini skoraði sitt sjötta mark í vetur er hann stangaði inn sendingu Ashley Young. Vincent Kompany, fyrirliði Man. City, var svo heppinn að fá ekki rautt spjald fyrir skrautlega tæklingu en slapp með gult. Man. Utd var ekki hætt því rúmum 20 mínútum fyrir leikslok skoraði Juan Mata þriðja markið. Hann var reyndar kolrangstæður er hann fékk sendingu inn fyrir vörn City en flaggið fór ekki á loft og Mata kláraði dæmið. Rangstöðumark breytti engu því Man. Utd var miklu betra liðið í vellinum og Chris Smalling skoraði fjórða markið skömmu síðar. City fékk smá sárabót í lokin er Aguero skoraði aftur en það mark breytti nákvæmlega engu. Stórkostlegur leikur hjá Man. Utd en ekki sér fyrir endann á vandræðagangi Man. City sem hefur ekki verið að spila vel síðustu vikur.Ashley Young jafnar leikinn. Fellaini kemur Man. Utd í 2-1. 3-1. Juan Mata. Niðurlæging. 4-1 er Chris Smalling skorar. Sergio Aguero skorar aftur. 4-2.
Enski boltinn Mest lesið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Albert svarar fyrir sig: Með skýr skilaboð til mannsins sem reif treyju hans Fótbolti Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti McGregor mætti óvænt og barðist í Dublin Sport Algjör ringulreið: Leik frestað hjá Alfons og Stefáni eftir ótrúlega uppákomu Fótbolti Nike semur við Baldvin: „Get nú kallað áhugamálið mitt vinnuna mína“ Sport Leik hætt hjá Arnóri um stundarsakir vegna slagsmála Fótbolti Neyðist til að hætta eftir margra mánaða greiningarferli Fótbolti Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Íslenski boltinn Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Körfubolti Fleiri fréttir Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Sjá meira