Ákvörðun Lampard ekki vinsæl í New York Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2015 16:00 Frank Lampard. Vísir/Getty
Frank Lampard gladdi stuðningsmenn Manchester City með því að ákveða að klára tímabilið með liðinu en menn í New York eru hinsvegar allt annað en sáttir með að stjörnuleikmaður liðsins láti ekki sjá sig fyrr en í sumar. Lampard kom til Manchester City á sex mánaða láni frá MLS-liðinu New York City FC en hann samdi við bandaríska félagið í fyrra. Það verður frekari bið eftir því að hann spili sinn fyrsta leik í bandarísku deildinni. Manchester City hefur nú framlengt lánsamninginn til maí eða júní sem þýðir að þessi 36 ára gamli miðjumaður missir af þremur fyrstu mánuðunum á sínu fyrsta tímabili með New York City FC. Stuðningsmannaklúbbur New York City FC, "the Third Rail", gekk svo langt að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem klúbburinn fordæmir opinberlega þessa ákvörðun Frank Lampard. New York City FC auglýsti mikið komu Frank Lampard á sínum tíma og seldi með því marga ársmiða og varning tengdum enska leikmanninum. Meðlimir Third Rail líta á að þeir hafi verið sviknir auk þess að vera ósáttir við að New York City FC sé með þessu látið líta sem annars flokks félag í samanburði við Manchester City. Frank Lampard hefur skorað sex mörk fyrir Manchester City á tímabilinu en liðið er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Eigendur Manchester City eiga einnig New York City FC og hafnarboltaliðið New York Yankees og leikir fótboltaliðsins í New York munu fara fram á sjálfum Yankee Stadium þegar bandaríska MLS-deildin fer af stað í mars.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira