Enski boltinn

Mikel segir að leikmenn styðji Mourinho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
John Obi Mikel í leiknum um helgina.
John Obi Mikel í leiknum um helgina. Vísir/Getty
John Obi Mikel segir að leikmenn standi þétt við bakið á Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea. Þetta segir hann þrátt fyrir að haft hafi verið eftir ónefndum leikmanni innan herbúða félagsins að hann myndi fremur tapa en að vinna fyrir Mourinho.

Sjá einnig: Leikmaður Chelsea: Myndi frekar tapa en að vinna fyrir Mourinho

Chelsea tapaði um helgina fyrir Liverpool, 3-1, og er liðið í fimmtánda sæti ensku deildarinnar með aðeins ellefu stig að loknum jafn mörgum leikjum. Chelsea hefur aðeins unnið þrjá deildarleiki í haust en liðið er ríkjandi Englandsmeistari.

Jose Mourinho var niðurlútur eftir tapið um helgina.Vísir/Getty
Chelsea er enn fremur úr leik í enska deildabikarnum eftir að hafa tapað fyrir Stoke í vítaspyrnukeppni í síðustu viku. Staða liðsins í Meistaradeildinni er heldur ekki góð en liðið er í þriðja sæti í sínum riðli með fjögur stig af níu mögulegum. Chelsea tekur á móti Dynamo Kiev í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Sjá einnig: Coutinho með tvö mörk í fyrsta deildarsigri Klopp | Sjáðu mörkin

Enskir fjölmiðlar hafa sagt Mourinho valtan í sessi hjá Chelsea en því hefur hann sjálfur neitað. Fullyrt er að hann fái nú næstu tvo leiki til að bjarga starfinu sínu.

Chelsea tapaði fyrir Liverpool um helgina, 3-1.Vísir/Getty
„Mörkin og sigrarnir koma ekki en það má sjá á leik okkar að við erum að spila fyrir stjórann okkar og við styðjum hann heilshugar,“ sagði Mikel í viðtali sem birtist á heimasíðu Chelsea. „Það er enginn vafi á því. Ef einhver getur snúið þessu tímabili við þá er það hann.“

Sjá einnig: Mourinho: Ég hef ekkert að segja

Chelsea hefur tapað sex leikjum í haust en liðið tapaði aðeins þremur deildarleikjum allt síðasta tímabil. Liðið hefur enn fremur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum.

„Við erum að leggja okkur 100 prósent fram. Það sjá allir hversu mikið við leggjum á okkur en úrslitin eru einfaldlega okkur ekki í hag. Hvert einasta skot sem við fáum á okkur endar í markinu og öll skot hafa viðkomu í varnarmanni. En við erum að leggja mjög hart að okkur og við leikmenn gefum allt sem við eigum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×