Eldfjall veldur áhyggjum vegna kjarnaofns Samúel Karl Ólason skrifar 16. ágúst 2015 22:22 Sakurajima er nærri um 600 þúsund manna byggð og kjarnorkuofni. Vísir/AFP
Íbúum nærri Sakurajima eldfjallsins í Japan hefur verið tilkynnt að mögulega muni þau þurfa að flýja svæðið í flýti. Viðbragðsaðilar voru settir á næst hæsta viðbragðsstig í gær eftir að mikil skjálftavirkni greindist í fjallinu. Líkur á eldgosi voru taldar miklar, en þó hefur dregið úr virkni í gígnum í dag og útlit er fyrir að kvika sem hafi safnast þar fyrir hafi sigið aftur. Sérfræðingar telja þó nauðsynlegt að fylgjast náið með fjallinu og útiloka ekki neitt. Eldfjallið er í einungis 50 kílómetra fjarlægð frá Sendai kjarnorkuofninum sem var gangsettur á þriðjudaginn í fyrsta sinn frá 2011. Um er að ræða fyrsta ofninn sem er gangsettur eftir að öryggisreglur voru hertar í kjölfar jarðskjálftanna árið 2011 og stórslyssins í Fukushima orkuverinu. Á vef Japan Times segir að þegar séu einhverjir íbúar af um 600 þúsund búnir að yfirgefa svæðið. Gangsetning kjarnaofnsins hefur mætt gagnrýni og telja margir að kjarnaofnar Japan séu enn viðkvæmir gagnvart náttúruhamförum. Jarðskjálftar eru mjög algengir í Japan og er talið að allt að 100 virk eldfjöll séu þar í landi.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Fleiri fréttir Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Sjá meira