Uppreisnarleiðtogi vill ekki vopnahlé Guðsteinn Bjarnason skrifar 24. janúar 2015 12:00 Alexander Sakhartsjenkó Leiðtogi uppreisnarmanna, fyrir miðri mynd, umkringdur lífvörðum. vísir/ap „
Af okkar hálfu verða ekki gerðar neinar tilraunir til viðræðna um vopnahlé,“ sagði Alexander Sakhartsjenkó, einn af helstu leiðtogum uppreisnarmanna í austanverðri Úkraínu. Hann sagði uppreisnarmenn vera í sókn þessa dagana og hafa því engan hag af friðarviðræðunum. Þeir myndu halda áfram að reyna að ná stærra svæði á sitt vald. Donetsk-borg væri þegar á valdi þeirra og nánast allt Donetsk-hérað sömuleiðis. Úkraínski herinn yfirgaf í vikunni flugstöðvarbygginguna í Donetsk eftir hörð átök þar, en uppreisnarmenn höfðu lengi haft flugvöllinn sjálfan á sínu valdi. Uppreisnarmenn segja samt að stjórnarherinn sé enn að gera árásir á flugvöllinn. Þrettán almennir borgarar létu lífið á fimmtudag þegar sprengjuflaug sprakk á strætisvagnastöð þar í miðborginni. Uppreisnarmenn saka stjórnarherinn um að bera ábyrgð á þessari árás, og Vladimí Pútín Rússlandsforseti hefur tekið undir það. Atlantshafsbandalagið segir margt benda til þess að hörð átök séu í uppsiglingu í austanverðri Úkraínu. Sameinuðu þjóðirnar segja að átökin þar hafi til þessa kostað meira en fimm þúsund manns lífið.
Mest lesið Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Sjá meira