Monk: Gylfi frábær í nýju hlutverki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2015 23:13 Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Swansea. Vísir/Getty
Garry Monk, stjóri Swansea, segir að Gylfi Þór Sigurðsson hafi notið sín í nýju hlutverki á miðjunni hjá liðinu síðustu vikur og mánuði. Gylfi hóf tímabilið með látum og skoraði fjögur mörk auk þess sem hann gaf sex stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni fyrir áramót. Síðan þá hefur hann skorað eitt mark og lagt eitt upp til viðbótar. Eftir að hann fór í bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarleiknum gegn Blackburn í janúar breytti Monk um leikkerfi hjá Swansea. Gylfi var færður úr sínu hefðbundna hlutverki sem sóknartengiliður, svokölluð „tía“, í að vera fremsti maður í tígulmiðju. „Hann er nú með tvo menn fyrir framan sig og því er hann frekar í því hlutverki að tengja saman spilið,“ sagði Monk í samtali við fjölmiðla í Wales í dag. „Þegar Gylfi spilar með einn sóknarmann fyrir framan sig þá er meiri pressa á honum að koma með ákveðinn sóknarþunga í leikinn.“ „Hann er nú orðinn aftur að meiri miðjumanni en hann er samt ógnandi og afar hættulegur. Hann nær afar vel saman við aðra leikmenn og er enn að skapa sóknir. Hann hefur sýnt hversu klókur leikmaður er með því að aðlagast nýjum aðstæðum eins vel og hann hefur gert.“ „Þetta snýst ekki um að taka sóknarþáttinn úr hans leik. Ég tel að við séum ekki að gera það. Við erum fremur að reyna að bæta heildarsvip liðsins.“ Hann segir að þó svo að Gylfi sé ekki að skora jafn mikið og gefa jafn margar stoðsendingar og áður þá þýði það ekki að hann sé að spila illa. „Ég held að honum og öllum öðrum sé sama um hver sjái um að skora mörkin. Það sem mestu máli er að við séum að skapa færi, skora mörk og spila góðan fótbolta. Það er aðalatriðið.“ „Mér finnst að Gylfi hafi verið frábær - og hann verður bara betri. Við eigum enn nokkuð í land miðað við það sem við viljum gera en við erum enn að taka skref fram á við. Við höfum sýnt að við getum gert marga mismunandi hluti með miðjumennina okkar sem gerir okkur betri.“
Enski boltinn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Sjá meira