Erlent

Taka upp læknaviðtöl

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Sjúklingar taka upp viðtöl við lækna.
Sjúklingar taka upp viðtöl við lækna. Fréttablaðið/HAG
Starfsfólk sjúkrahúsa í Danmörku varar við því að sjúklingar geti með farsímum sínum tekið upp viðtöl við lækna án vitundar þeirra. Danska blaðið Jótlandspósturinn greinir frá því að á hverju ári noti sjúklingar eða ættingjar upptökur sem gerðar hafa verið í leyni sem gögn þegar kvartað er undan lækni eða hjúkrunarfræðingi.

Fulltrúi hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsi í Álaborg segir í viðtali við danska ríkisútvarpið að þetta sé líklega tímanna tákn. Fólk noti símana til alls. Það er mat hjúkrunarfræðingsins að í lagi sé að taka upp viðtal óttist sjúklingur að gleyma því sem sagt var en þá ætti að láta starfsfólk vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×