Áttundi knattspyrnustjórinn sem er rekinn í ensku b-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2015 15:00 Gary Bowyer og Brendan Rodgers hafa báðir verið reknir á þessu tímabili en hér heilsast þeir fyrir bikarleik síðasta vor. Vísir/Getty
Það eru bara liðnir þrír mánuðir af tímabilinu í ensku b-deildinni en samt hafa 33 prósent félaga deildarinnar gripið til þess ráðs að skipta um knattspyrnustjóra. Gary Bowyer varð í gær áttundi stjóri ensku b-deildarinnar til að taka pokann sinn þegar Blackburn Rovers rak knattspyrnustjórann sinn. Fjórir af þessum átta knattspyrnustjórum voru reknir á fyrstu tíu dögunum í nóvembermánuði og aðeins eitt af þessum fjórum félögum er búið að finna nýjan varanlegan knattspyrnustjóra. Meðal þeirra sem hafa verið reknir eru Guy Luzon, knattspyrnustjóri Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Charlton Athletic og Steve Evans, fyrrum knattspyrnustjóri Kára Árnasonar hjá Rotherham United. Steve Evans var reyndar ekki lengi að finna starf því hann tók við liði Leeds United aðeins tuttugu dögum eftir að hann var rekinn frá Rotherham United. Knattspyrnustjóri Rotherham United er hinsvegar Neil Redfearn sem var einmitt rekinn frá Leeds United í maí. Brentford, fyrsta félagið til að reka knattspyrnustjórann, er eins og er í 11. sæti deildarinnar en það er óhætt að segja að stjórabreytingin hafi gengið upp því liðið er með fjóra sigra og aðeins eitt tap í síðustu sex leikjum sínum. Leeds United hefur líka unnið tvo síðustu leiki sína undir stjórn Steve Evans og er komið upp í 15. sæti. Það gengur aftur á móti áfram ekkert hjá Charlton Athletic eða Rotherham United sem voru hin tvö félögin sem skiptu um knattspyrnustjóra í október.Knattspyrnustjórar sem hafa misst starfið á þessu tímabili í ensku b-deildinni: 1. Brentford - Marinus Dijkhuizen (28.september) 2. Rotherham United - Steve Evans (28.september) 3. Leeds United - Uwe Rösler (10. október) 4. Charlton Athletic - Guy Luzon (24. október) 5. Huddersfield Town - Chris Powell (4. nóvember) 6. Queens Park Rangers - Chris Ramsey (4. nóvember) 7. Fulham - Kit Symons (8. nóvember) 8. Blackburn Rovers - Gary Bowyer (10. nóvember)
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira