Njósnari Man. Utd rekinn fyrir kynþáttaníð Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. janúar 2015 08:00 Daninn vinnur ekki fyrir United framar. vísir/getty
Enska stórliðið Manchester United rak einn af njósnurum sínum í Evrópu eftir að kom í ljós að hann hefði verið með kynþáttaníð í garð múslima á Facebook-síðu sinni. Maðurinn er danskur og heitir Torben Aakjær, en hann starfar í Kaupmannahöfn og hefur unnið fyrir United síðan 2011. Hann var áður á mála hjá Hamburg. Á Facebook-síðu Aakjærs voru td. Moskur, bænahús múslima, sögð vera samsæriskenningahús og þá vildi hann setja meiri mannskap á landamærin inn í Danmörku til að halda öllum „skítnum“ í Evrópu frá landinu. Einnig mátt á Facebook-síðu Danans finna stuðningsyfirlýsingu við hægri sinnaðan stjórnmálaflokk í Danmörku þar sem hann birti mynd af sex svínum og skrifaði: „Það er kominn tími til að senda leynivopnin okkar á múslimana.“ Aakjær staðfesti við enska blaðið Guardian að um hans Facebook-síðu væri að ræða, en hann hefði aldrei notað orð eins og skítur þegar talað var um íbúa í austur-Evrópu. Hann vildi meina að einhver, sem hefði eitthvað gegn honum eða Manchester United, hefði brotist inn á aðganginn hans. Hann eyddi svo öllum póstunum eftir að blaðamaður Guardian hafði samband við hann. „Félagið fékk sönnunargögn frá Guardian, hóf strax rannsókn á málinu og hefur nú slitið samstarfi við herra Aakjær. Manchester United er félag sem líður ekki svona hegðun,“ segir í yfirlýsingu frá enska félaginu.Hér má lesa alla frétt Guardian um málið.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira